þriðjudagur, febrúar 03, 2009

Ríkisstjórnarfundur par exelans

Ég hlustaði á ríkisstjórnarfund sem að var í dag. Og verð ég að segja að ég er ánægður með hana Jóhönnu Sig en ég veit ekki alveg með hann Steingrím hann er einhvern veginn ekki alvega að virka fyrir mig. Finnst hann segja „Ég held að ég mæli fyrir alla þegar að ég segi“ þar sem að hann á bara að mæla fyrir sjálfan sig eins og Jóhanna gerði. Þá sagði Jóhanna að það lægju fyrir 15-20 frumvörp sem að á að reyna að koma í gegn á þessum stutta tíma sem að þau hafa. En reynslan sýnir nú að það er sýnd veiði en ekki gefin að koma frumvörpum í gegnum vort þing. En þetta eru göfug markmið og verður gaman að fylgjast með hvað þessi frumvörp fjalla um og svo hverjir verða á móti. Einhvern veginn grunar mig að Sjálfstæðismenn verði á móti Seðlabankafrumvarpinu þar sem að þeim þykir vera vegið of mikið að Davíð.
Þegar öllu er á botninn hvolft hvort sem að verið er að ræða um Seðlabankann,kaupþing, Glitnir eða vað sem er þá er þetta spurning um orð sem að ekki hefur verið mikið í sviðsljósinu á Íslandi og það er FAGLEGÁBYRGÐ. Legg til að fólk sem að stoppar við þetta orð og veit ekki hvað það skilgreinir að fletta í orðabókinni sem að allir í fermingagjöf, eða flestir.


Ég vona að það komi eitthvað útúr þessu öllu saman og er ég sannfærður um að margt gott gerist nú á næstu dögum og vikum.

Engin ummæli: