miðvikudagur, febrúar 04, 2009

Jæja þá er Gunnhildur farin í vinnuferð til Ringsted sem að er hérna rétt fyrir utan Köben. Það verður svona frekar tómlegt í kvöld að hafa hana ekki.
En ég á von á gestum mér líður eins og ég sé að fara í burt frá Köben fyrir fullt og allt því á mánudaginn fór ég með nokkrum vinum mínum úr skólanum út í pool og með því. Svo þegar að kom að kveðjustund þá var bara tekið utanum og kvatt eins og að við myndum aldrei sjást aftur. En ég hugsaði bara hrikalega á maður nú góða vini hérna úti. Nema hvað að í gær hringdi hann Morten í mig og ætlar að koma í heimsókn til að kveðja. Ég hef verið með Morten í hóp núna í þrjár annir en hann er svona einfari og átti ég ekki von á því að hann mundi hringja og boða komu sína til að kveðja en það verður gaman að hitta hann.
Dagur inn í dag á að fara í lestur og ekkert annað en lestur. En ég er ekki byrjaður að lesa er frekar að skrifa þetta og svo er ég búinn að þrífa ískápinn. Uhhm best að fara að þrífa ískápinn nei þetta er nú bara svona, maður er duglegur að koma sér í einhver önnur verkefni en að læra. Reyndar er ég að læra hrikalega áhugavert en ég veit að það hafa fáir áhuga á því sem að lesa þessa síðu en ég er að skoða BIM. Og er kominn með óendanlega mikið af efni um BIM. Er reyndar að spá í að vinna svolítið mikið með BIM á næstu misserum ef að allt gengur eftir en förum ekki nánar út í það.

Á meðann að ég var að þrífa ískápinn þá fékk ég einverja löngun til að hlusta á þetta lag hér að neðan og fékk ég svona smá flash back frá Fellahelli sem að var og hét


1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæbb hæbb kæra fjölskylda, alltaf gaman ad lesa hvad thid erud ad stússa....er einmitt á BIM kúrs thessa dagana....verd ad vísu ad segja ad mér thykir thad mis áhugavert.....eníhú hvad erud thid famelían ad stússa sunnudaginn 22.feb (kvöld) til morgunn 23. feb? er pláss fyrir næturgest? er á leid í skólatúr og væri til í ad hitta ykkur í leidinni svona....kem med raudvín sem betaling:) verd í bandi...hilsen pilsen magga stína