Þá er fyrsti píanótíminn afstaðinn þetta var alveg frábært foreldrarnir fengu að horfa á. Og Jakob tók þátt í tímanum við vorum nú ekkert endilega búin að ræða það að hann færi að læra á píanó líka. En kennarinn vildi endilega að hann kæmi með Friðriku í tímana og fengi að vera svona þáttakandi í sumu og svo vill hún bara að hann byrji þegar að hann er orðinn fimm ára. Hún sagði að hann væri alveg efni í píanóleikara.
Friðrika er með gott tóneyra sagði kennarinn og gerði hún alskyns próf á henni til að sjá hvernig hún skynjaði nótur og hún gat allt rétt en ekki hvað. Þessi tími var svona prufutími svokallaður en við ætlum að hafa hana í einkakennslu hjá þessari konu framvegis, það munar ekki nema tíukrónum á einkakennslu eða venjulegri kennslu. Einnig þá fær hún meiri athygli í einkakennslunni og vonandi skilar það sér.
Friðrika var hrikalega ánægð og stolt að vera byrjuð loksins að læra á hljóðfæri. Ég verð nú að viðurkenna að ég öfunda hana að vera byrjuð að læra á píanó og sérstaklega hjá þessum kennara hún er eitthvað svo góð í sínu fagi. Og vonandi verður Friðrika jafn góð og hún eða bara betri.
Jæja þá er best að fara að koma sér í Diskógallann því við hjónin erum að fara í afmæli/úskrift hjá Hildi og DR Bjarka hér á bakkanum.
Lifið í lukku en ekki í krukku
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
til lukku með nýja píanótímann Fröken Friðrika :)
Siggi, hvernig er þetta með þig, ertu mjög afbrigðilegur? Vonandi fer þetta ekki mjög versnandi hjá þér :)
og það er Ragga sem að skrifar undir ...
knús og kram
þið eruð æðisleg
tinna frænka
Ragga ég mundi örugglega valda þér vonbrigðum.
Tinna knús og kram á móti double
Skrifa ummæli