fimmtudagur, janúar 29, 2009

Hitt og þetta aðalega þetta

Er nú ekki kominn tími til að gera smá upp

Föstudagur:
Dagurinn var tekinn snemma vegna svengdar prinsins á heimilinu jú hann Jakob er mikil morgunmanneskja og finnst gott að taka morgnana alltaf fyrr og fyrr. En ekki er möguleiki að biðja hann um að fara aftur að sofa þegar að hungrið kallar og skiptir ekki máli hvað klukkan slær. Aðra sögu er að segja um hana Friðriku sem að veit ekkert betra en að sofa út á virkum dögum en taka daginn snemma um helgar.
Þegar að allir voru nú vaknaðir og búnir að borða og gera öll þau verk sem að morgnunum fylgir þá var haldið á leið í skólann og leikskólann. Jakob vill alls ekki að maður segi að hann sé í skóla því hann er í leikskóla.
Gunnhildur fór í vinnuna og Siggi tja já Siggi hann gerði eitthvað mjög lítið eins og alla hina dagana sem að hann er í fríi en ef þú spyrð hann hvað hann er að gera þá segist hann vera að vinna að verkefni.
Eftir vinnu hjá Gunnhildi fór hún að ná í friðriku og vinkonur hennar því hún átti alltaf eftir að halda uppá afmælið hér í DK. Reyndar ætlaði hún að vera löngu búin að halda uppá það en besta vinkona hennar er búin að vera á Spáni og þ.a.l var verið að bíða eftir henni. En eins og ég segi fólst afmælið í því að bjóða vinkonunum í bíó og út að borða þetta var vel heppnað kvöld sem að hún á eftir að muna í .ó nokkur tíma.

En á meðan voru strákarnir heima að baka Pizzu og skúffuköku, og svei mér þá bara ef að ég held ekki að hann Jakob eigi eftir að verða kokkur því áhugin er svo mikill að það má ekki heyrast í hrærivél þá er hann kominn og vill hjálpa. Reyndar eru verðlaunin fyrir að hjálpa líka ekki af lakari endanum. Hver man ekki að fá að sleikja sleifina eftir baksturinn.
Kvöldið var hið rólegast eða svokallað kósýkvöld eins og það er kallað hér á bæ með skúffukökku og nýrri teiknimynd.
Og börnin komin í háttinn frekar snemma þar sem að það var stór dagur á laugardaginn.

Laugardagur:
Byrjaði snemma en hefði mátt byrja fyrr en þar sem að öllum leið svo vel þá ákvað pabbi bara að snoosa sem að var góð hugmynd akkúrat á þeim tímapunkti. En öll vöknuðum við nú fyrir rest og rukum af stað og ferðinni var heitið í Det Kongelige theater þar sem að við horfðum á Friðriku dansa á stóra sviðinu veit ekki hvort að það sé eitthvað annað svið en það hljómar allavega vel. Þar sýndi hún hvað hún er búin að vera að læra síðustu laugardaga ásamt fullt fullt af stelpum einnig var þeim kennt að hneigja sig fyrir drottninguna sem að var ekki þarna. En Jakob var viss um að hún væri þarna að horfa á systur sína. Okkur fannst Friðrika náttúrulega best og satt best að segja þá stóð hún sig bara með mikilli prýði. Svo er bara að sjá til hvort að hún leggi stundir á balletinn en eins og ég hef áður skrifað um þá er dagskráin hjá henni frekar mikil þegar að kemur að tómstundum og eru núna píanótímar að bætast inní.
En eftir sýninguna var Jakob orðin svo rosalega svangur að við hentumst inn í Magasin og fengum okkur smurbrauð að hætti danans. Við reyndar ákváðum það þegar að við vorum á leiðinni inn í Magasin að tala bara dönsku svo að við yrðum ekki fyrir aðkasti haha.
Svo um kvöldið kom Eiríkur Örn,Embla og vísitölufjölskyldan af 023 í mat og var bara kjaftað ob borðað langt framm eftir vá held bara að ég hvafi ekki hlegið jafn mikið síðan 20 desember(vorum í jólaboði).

Vikan er svo bara búin að vera með hinu rólegasta móti Friðrika að byrjaði aftur í Capoeira eftir vetrarfrí en annars bara allt með kyrrum kjörum. Erum reyndar að fara í dag með Jakob til sérfræðing út af bakinu á honum.


Myndirnar eru ekki í bestu gæðum þar sem að þær eru teknar uppá síma



3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er nóg að gera hjá Friðrikunni :)
Flott hjá henni, hún er alger dúlla þessi skonsa :)

Já spurning að hóa í Jakob í framtíðinni ef manni vantar einhvern til að galdra fram kræsingarnar í eldhúsinu ?

kv,
Ragga

Nafnlaus sagði...

Ég er sammála Röggu hún Friðrika mín er algjör dúlla og bara duglegust, já og ég tala af reynslu hann Jakob er vel duglegur í eldhúsinu það erður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. haltu áfram Siggi minn að vera duglegur að senda inn myndir og fráttir þær eru alltaf lesnar þó ég kvitti ekki alltaf.
knús
amma

SGFJ sagði...

Já Ragga það verður örugglega ekkert mál að fá hann til að henda upp veislu ef þessi áhugi helst hjá honum. Og Friðrika er svokallað kjarnorkukvendi sem að getur allt sem að hún vill.

Já Ásta við reynum að vera dugleg og jafnvel duglegri að henda hæerna inn fréttum og myndum. En það er alltaf skemmtilegra að fá smá kvitt.