þriðjudagur, janúar 06, 2009

bókasasfns þjónusta

Fékk mail í dag frá bókasafninu um að bráðum yrði ég sektaður vegna 8 bóka sem að átti að skila í gær. Og enginn smá sekt eða 5 dkk á dag per bók sem að mér þykir frekar mikið. Þannig að ég ákvað bara að framlengja leigutímann sem að er hægt að gera á netinu en því miður þá er bara hægt að framlengja leigutíma á þrem bókum. Þannig að það var ekkert annað að gera en að henda sér í föðurlandið og öll þau hlýjustu föt sem að ég á og hjóla lengst út á Amager.
Þetta þykir mér samt frekar góð þjónusta að láta mann svona vita að maður verði bráðum sektaður. Ég var reyndar ekki búinn að gleyma að ég ætti eftir að skila bókunum heldur datt það bara upp fyrir í stressinu í gær.

Annars er ekkert að frétta héðan nema hvað að það er kalt kalt kalt. En sem betur fer er nú að hlýna því það er ekki eins og að ofnarnir hérna hitni neitt sérstaklega og er ég búinn að reyna að vera í sambandi við okkar ágæta húsvörð sem að virðist fá borgað fyrir að vera ekki í vinnunni.

Engin ummæli: