Jæja þá er því lokið síðustu fjórir dagar eru búnir að vera erfiðir og einkennast af stressi. Þetta er alltaf sama stressið þegar að maður er að pinna upp eins og það er kallað. Þó svo að maður sé búinn að gera þetta nokkuð oft eða 5 annir þrisvar á önn þá er maður alltaf efins um eitthvað spurningar eins og hvað megi fara betur og er hægt að gera þetta öðruvísi. Þetta eru spurningar sem að stressa mann upp og maður spyr sig á ég að gera þetta svona eða hinsegin. Sem betur fer gerðum við þetta svona nokkurnveginn eins og kennararnir vildu en það er nú ekki alltaf svo auðvelt í skólanum mínum. Og er það vegna þess að kennararnir vita ekki alltaf hvað þeir vilja.
Þegar að maður fer inn í svona kynningu þá þarf maður að kynna verkefnið sem að voru tvö í þetta skipti annað í Barcelona og hitt í kaupmannahöfn. Þegar að hópurinn er búinn þá er farið inn hver fyrir sig og þá er maður spurður spjörunum úr. Einhvern veginn Þá tekst mér að rökræða alveg út í það óendanlega um hitt og þetta og næ kennurunum upp og fara þeir stundum að rökræða sína á milli. Ég var inni í einstaklings kynningunni í 25 mínútur en hvert okkar átti bara að fá tíu mínútur. Mér fannst tíminn líða hratt og þegar að ég kom fram þar sem að hópurinn minn stóð nagandi neglurnar og að farast úr stressi vegna lhve lengi ég var inni. Frammi með þeim var hún Ireana sem að var með mér í hóp á síðustu önn og hún spurði hvað ég var spurður útí og ég segi henni það en ég sagði að ég hafi lent í heitum rökræðum við Thomas þá segir hún „já þú hefur lag á því að ná þeim upp og sannfæra þá um að þú hafir rétt fyrir þér“. En svo sagði Thomas við mig þegar að hann var gefa mér einkunnina „Siggi ég veit ekki hvað það er en þú lætur allt líta út fyrir að geta virkað“ veit ekki hvort að það er kostur eða lasti en ég fékk allavega 10 sem að ég get ekki annað en verið ánægður með. þannig nú er bara að bíða eftir að Gunnhildur og krakkarnir komi heim er frekar einmanna hérna og finnst þetta mjög skrýtið að vera svona einn heima.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Til hamingju með árangurinn!
kv. Hanna
takk fyrir
Já innilega til hamingju með árangurinn Siggi. Flott hjá þér.
kv. M
Vá glæsilegt Siggi !!
Til lukku með þetta ;)
R
Glæsilegt Sigurdur, vel af sér vikid. Thú ert ad sjálfsøgdu ávallt velkominn yfir á 023 í kaffi og kjafterí ;)
Takk fyrir það Eiríkur
Skrifa ummæli