miðvikudagur, janúar 07, 2009
Kaffibaun þessi dásamlega kaffibaun og í raun kaffibaun
Note to self „maður á erfitt með að sofna eftir 6 bolla af kaffi“ Ekki eins og ég hafi ekki vitað það en ég gerð mér ekki grein fyrir hvað ég var búinn að drekka marga bolla. Sat fyrir framan sjónvarpið að horfa á verkfræði þáttinn minn á Discovery og sötraði á nokkrum bollum. Svo þegar að hann var búinn þá kallaði bókin á mig þar sem að hún lá á stofuborðinu og safnaði bara ryki. Þetta er bæok um Hafsskipsmálið sem að kom nú út fyrir jól og fékk ég hana í jólagjöf frá tengdaforeldrum mínum. En þarna er á ferð alveg ótrúlegt mál sem að allir ættu að kynna sér. Ég setti upp gleraugun og hóf lestur en þó ekki fyrr en ég var kominn með kaffibolla í hendina. Og áður en ég vissi af þá var ég búinn með þrjá þannig samtals sex bolla á ca tveim tímum. Það verður að teljast ágætt ef að maður fengi greitt per bolla. En ekki í mínu tilfelli þar sem að ég starði uppí loftið og gat ekki fyrir mitt litla líf sofnað. Þannig að ákvörðun var tekinn ég fór fram og hélt áfram að lesa og svo í einhverju móki þá áttaði ég mig alltí einu á því að ég var að hella mér uppá annan bolla. Sem ég snarhætti við og fékk mér moldarvatn úr krananum.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli