þriðjudagur, desember 30, 2008

fyrir tólf

Jæja vonandi að ég nái einu fyrir tólf haha. Vorum með sólbakkafólkinu sem að hefur flust til Íslands í dag og í kvöld sem að er alltaf jafn gaman, við hentum okkur í keilu og enduðum í þ-selinu og borðuðum fajitas. áður en að kvöldverðurinn hófst þá eignaðist ég vinkonu sem að vildi eingöngu leika felu/eltingaleik. :etta var hún Tinna litla sem hefur einstakt lag á því að láta karlmenn stjana við sig t.a.m þá plataði hún alla karlmenn í húsinu til að koma með sér úr stofunni inní herbergi til að skoða Spidermann. En hún fór alveg með það þegar að hún byrjaði að kalla á mig með nafni jú góðir hálsar hún kann nafnið mitt og þegar að tveggja ára barn er byrjað að kalla á mann með nafni þá er ekki annað hægt að hlýða. En annars frábært kvöld á enda og við erum svo þreytt og ekki má gleyma allt allt of södd. Góða nótt

Engin ummæli: