sunnudagur, desember 28, 2008

Bækur sem gleðja

Ég hef aldrei sagt að hún tengdamóðir mín hafi ekki húmorinn í lagi og mun líklega aldrei gera það. Í jólagjöf í fyrra gaf hún mér nefnilega bókina hans Þorgríms þráinssonar „hvernig gerirðu konuna þína hamingjusama“ og verð ég að viðurkenna að hún fékk pönkaraprik fyrir það. Þannig að í ár þá ákvað ég að djóka í henni og gaf henni bókina sem að hún les upp titilinn á hér í myndbandinu að neðan. En þessi bók átti nú að vera bara djók en nú sé ég að hún eyðir hverri lausri mínútu í lestur á þessari gæðabók. Enda er þetta alveg að detta inn hjá henni. En allavega þá hitti þessi bók í mark eins og að mig grunaði.

Fyndið samt því ég gleymdi henni í DK og Eva og Stebbi nágrannar mínir komu með hana eftir að Jói hætti limum sínum í að komast inní íbúðina og ná í hana og kann ég þeim miklar þakkir. Þegar að ég segi að Jói hafi hætt limum sínum þá meina ég að hann hringdi í annan húsvörðinn á kolleginu og bað hann að opna en þar sem að maður hringir ekki í hann nema að það sé eitthvað stórvægilegt að því hann er svo leiðinlegur.

Ég reyndi að redda þessari gæðabók hér á Íslandi og meðal annars hringdi ég í Eymundsson en stúlkan í símanum tjáði mér að þau ættu bara bókina sex with robots en það var ekki alveg bókin sem að mig vantaði en nú veit ég hvar hana er að finna alltaf gott að vita svona.





7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

heheheh þessi var góður. Langar samt ekkert að vita meira af þessari gjöf, eða hvort eða hvernig hún komi að notum, þannig er það bara....
Fannst þú samt geta "vitnað" óþæginlega mikið í hana, eins og þú hefðir eytt dulitlum tíma í lestur á henni áður en þú gafst hana.

Jæja kominn tími á nýtt blogg.
kvitti kvitt.
Hanna Ofur kvittari

Nafnlaus sagði...

Já þetta var góð gjöf. Og alveg rétt Hanna Jóna, hann nánast kunni hana utanbókar blessaður.

SGFJ sagði...

Þetta er frábær bók sem að velunnarar góðra bókmennta ættu ekki að láta framhjá sér fara. Nei en svona í alvöru þá er mikið af fróðleik í þessari bók sem að fólk getur nýtt sér t.d hvern hefði grunað að hjartalyf og Viagra færu ekki saman.

Nafnlaus sagði...

hahaha, þetta er nú meiri snilldin, líka gaman að því að konan hafi sér eitthvað nytsamlegt og lærdómsríkt til dundurs.
....er ekki annars kominn tími á blogg Siggi?

SGFJ sagði...

Jú það kemur seinna í dag þar sem að ekkert markvert hefur gerst nema hvað að krónan er að veikjast og ekki nenni ég að blogga um það:)

Nafnlaus sagði...

ahhhhhhh mér finnst eins og ég sé að vinna eitthvað! nei bara því að ég kommenta en þú ert aaaalveg á renna út á tíma að blogga.... vá hvað það er mikil pressa að vera þú núna....segi ekki meir.
kv. Ofur kvittarinn, H

SGFJ sagði...

vinna eitthvað hvað meinarðu er ekki bara eitt-núll