þriðjudagur, desember 30, 2008

48 tímar

Þegar að við komum til Íslands og einnig í aðdraganda ferðarinnar. Þá ákváðum við að við ætluðum að gera svo mikið og hitta svo marga og síðast en ekki síst að borða svo mikið af íslenskum mat. Því miður hefur tíminn hreint og beint flogið frá okkur og við höfum ekki náð að hitta alla eins oft og við vildum og suma höfum við einfaldlega ekki náð að hitta.

Varðandi matinn þá höfum við ekki borðað lambalæri og í rauninni höfum við bara borðað einu sinni svona heima ef svo má segja öll hin kvöldin hafa verið boð hingað og þangað sem að hefur verið æðislegt. Við erum líka búin að borða óheyrilega mikið af hangikjöti sem að er alltaf jafn gott, einnig smakkaði ég í fyrsta skipti tvíreykt hangikjöt sem að er hreint út sagt geðveikt. Enginn fiskur hefur farið inn fyrir okkar varir ef að Skatan er frátalin. Ég veit ekki alveg hvað við munum borða síðustu dagana sem að Siggi er hérna en það verður einher veislumatur án efa. Reyndar er mikil tilhlökkun fyrir nautalundinni sem að verður á gamlárskvöld og svo skemmtilega vill til að hún er ættuð frá Argentínu. Spurning hvort að við eldum bara ekki í kvöld lamb með einhverju hrikalega íslensku ívafi. Reyndar þá hefur Siggi nú tækifæri á að bæta þetta allt saman upp þegar að hann kemur í lok jan byrjun feb þar sem að hann stefnir á að fara að vinna á VSÓ í 10 vikur sem að er praktíkin sem að hann á af taka vegna námsins. Jæja þá erum við farin að nýta síðustu klukkutímana sem að Siggi er á landinu í að reyna að heimsækja þá sem að við höfum ekki hitt.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já það fer bara að líða að heimferð hjá Sigga. Þetta líður allt of hratt. En Gunnhildur, taktu frá eitt kvöld með okkur stelpunum í hyggilegheds pige aften áður en þú ferð heim. Við verðum að negla einn karla-og barnlausan hitting. ikke?