Photoshop er skemmtilegt forrit sem að ég ætla mér að læra og hef ég verið að reyna að klóra mig áfram í því í þó nokkurn tíma. Mig langaði alltaf að læra að gera svona mynd eins og er hér að neðan af Lindu og Jakob. Svona bæði svarthvíta og í lit. Og loksins eftir ansi margar tilraunir og enn fleiri pirrings köstin þá tókst þetta. Reyndar átti ég að vera að læra þegar að ég ákvað að reyna enn einu sinni. Fyndið hvað maður fer alltaf að gera allt annað en að læra þegar að mest liggur við.

Og svo pósan hjá hjónakornunum
3 ummæli:
vóóó... já pósan. Það er ekki hægt lengur að taka mynd af Gunnhildi án þess að hún seti sig í pósuna! Eruð þið oft að dunda ykkur við að æfa pósur...? Eða nei þarf ekki að vita það. En flott er myndin af ykkur....
kv. Ofur kvittarinn
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir samverustundirnar á árinu sem er að líða. Vona að þeim fjölgi á komandi ári :-)
kv. Hanna og Daði
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Góða ferð heima þann 1. Siggi og vonandi hafið þið haft það gott um áramótin.
kv. María
Skrifa ummæli