miðvikudagur, september 17, 2008

Hvað áttu við Geiri




Það iljar mér og örugglega flestum Íslendingum að lesa mbl.is í dag þar sem að haft er eftir Geira að verðbólgan verði komin nálægt 2,5% um mitt næsta ár.
Nú ætti einhver að spyrja Geira hve nálægt verðum við 2,5% svo að hann geti ekki sagt að ári þegar að verðbólgan er 10% að við séu nálægt 2,5 prósentunum. Ég meina skilgreindu nálægt ég t.d er nálægt 180cm en er í raun og veru (samkvæmt vegabréfinu sem að eru áreiðanlegar upplýsingar) 172cm en mér finnst skilgreiningin nálægt því það hentar mér vera innan 8cm plús mínus þegar að talað er um hæð.

Engin ummæli: