þriðjudagur, september 23, 2008

23 sept

Enn og aftur þá kemur skólinn minn mér í opna skjöldu og sýnir mér hvernig ekki á að reka fyrirtæki.

Þar sem að fjölskyldan hefur ákveðið að koma heim um jólin; þá varð að ákveða hvaða dagsetningar hentuðu þar sem að hvorugt okkar getur stokkið úr okkar daglega amstri án þess að samræma vinnu,skóla og frí.

Í byrjun annar fékk ég svokallaða annaráætlun sem að við eigum að geta treyst og þar stendur að ég eigi að vera í prófum í lok janúar. Ekki treysti ég henni nú betur en svo að ég sendi bæði námsráðgjafa og skriftofunni mail og bað um að fá staðfestingu á því að ég ætti að vera í prófum í lok janúar. En ekkert svar fékk ég frá þeim þó svo að ég hafi sent annað ítrekunar mail. Þannig að ég varð að treysta áætluninni sem að við fengum í byrjun annar. Nú í morgunn fékk ég mail varðandi próf mail sem að allir fá og þar er mér tjáð að ég eigi að vera í prófum 2 viku dag eitt og tvö. Sem að þýðir að ég þarf að breyta miðanum mínum og það þarf líklegast að borga eitthvað fyrir það.

Flott hjá skóla sem að er að kenna nemendum sýnum mikilvægi þess að vera með nákvæmar tímaáætlanir og ánægða viðskiptavini.

E.S
Til lukku með daginn Hildur og Hanna Jóna

Engin ummæli: