Friðrika : pabbi ert þú með tattú
Pabbi: nei
Friðrika: langa þér ekki í tattú
Pabbi: jú jú ég hef alveg hugsað um það en það væri þá bara nöfnin ykkar eða kennitala, en ég mundi aldrei fá mér neitt sem að ég gæti mögulega séð eftir
Friðrika: ó
Pabbi: En þú langar þig í tattú
Friðrika: já mig langar að fá mér svona rós með svona laufblöðum
Pabbi: Hvar myndirðu fá þér það (Friðrika bendir á efri handlegginn)
Pabbi: Þú færð þér ekki tattú nema að tala við okkur fyrst og ég efa að ég mundi leyfa það (einn orðinn frekar áhyggju fullur)
Friðrika: nei því þegar að ég er orðin stór þá þarf ég ekkert að spyrja ykkur um leyfi því að þá ræð ég yfir mér.
Gunnhildur springur úr hlátri en reynir að halda andliti og Siggi getur ekki sýnt nein svipbrigði þar sem að Friðrika horfir beint á hann með stóru bláu augun. Og þennan svip sem að segir manni að hún er að meina það sem að hún segir.
Já hún Friðrika er með svar við flestu; hvaðan skildi hún hafa það?
Hanakambsdagurinn
2 ummæli:
gaman að fylgjst alltaf reglulega með ykkur kíki oft en kvitta alltof sjaldan.
þið eruð svo sæt, sniðug, klár og skemmtileg systkini
knús knús
Tinna frænka
flottir fedgarnir med hanakambinn:) kv. magga stína. p.s. verd í bandi næstu helgi, verdum í köben gistum med teingdó en langar agalega í eins og einn kaffibolla med ykkur:)
Skrifa ummæli