mánudagur, júlí 07, 2008

Á beit

Það að halda heimili er ekki á allra færi því miður og þekki ég nokkra svoleiðis án þess þó að nefna nein nöfn. En sumir kunna svo vel að halda heimili að það er ótrúlegt, í kvöld fæ ég að líða fyrir það hvað tengdamamma mín heldur gott heimili. Þið hugsið hvernig getur maður liðið fyrir svoleiðis jú ég skal segja ykkur það.

Þessa stundina er ég að passa heimilið fyrir tengdó , en þó er búið að vera smá flakk á mér t.a.m var ég að passa hana Sesselju Líf frænku mína í nokkra daga og þá gisti ég í íbúð systir minnar í mosó. Svo er ég nýkominn aftur í Kríuásin þar sem að tengdaforeldrar mínir búa. Síðustu daga er búið að vera frekar mikið að gera og hef ég lítið annað gert uppí Kríuás enn að bursta tennurnar sofa og hella uppá kaffi old school sem að er alltaf jafn gott og sérstaklega úr þessari 1999 krónu kaffivél.
Eftir svona nokkur kvöld þar sem að mér var annaðhvort boðið í mat af góðu fólki eða ég fékk mér bara Sómasamloku seint á kvöldin í vinnunni. Þá langaði mig að elda mér eitthvað, strákurinn fór í Bónus og keypti sér morgunkorn mjólk og sitt lítið á grillið. Þegar að heim var komið opnaði ég forsoðnu kartöflurnar hendi þeim á nýkveikt grillið og blanda mér græsk sósu, tók upp hrásalatið og allt þetta tek ég bara beint uppúr gula Bónuspokanum. Nema hvað þegar að allt er nú að verða tilbúið þá ákveð ég að henda léttmjólkinni inní kælir og rétt áður en að ég skelli kælinum þá finn ég svona einkennilega lykt. Lykt sem að ég hef ekki fundið úr Ástu ískáp áður þannig að ég fer að gramsa og það var svona eitt og annað sem að var byrjað að súrna sem að eðlilegt er. Nema hvað þegar að ég fer að fara yfir hvað er inn í ískáp þá er það fyrsta sem að ég sé er að það er hráskinka sem að rennur út í dag sama var að segja um Íþróttasúrmjólkina, hneturnar,grænmetið, marspanið og svo gæti ég lengi haldið áfram. En þetta verð ég að klára í kvöld ég meina maður lætur ekki hráskinku skemmast fyrir fram augun á sér. Það er bara sama og að hjálpa ekki gömlu fólki yfir götu eitthvað sem að maður undir engum kringumstæðum gerir ekki sama með íþróttasúrmjólkin,grænmetið,marsipanið og allt hitt. Þannig að ég verð á beit í allt kvöld.

Hvað lærum við af þessu jú Ásta maður hættir að kaupa í matinn 3 dögum áður en að maður fer út en nota bene ég er ekki að kvarta.
Svo tek ég frystirinn í gegn á morgunn vá ég er bara að verða spenntur spurning um hvort að ég nái að sofna í kvöld.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég get ímyndað mér að þú hafir haft það gott í maganum eftir allt þetta át, en þú ert búinn að vera svo duglegur í ræktinni þannig að er þetta ekki bara allt í lagi;)
Vonandi hefur þú það gott á fróni og við byðjum að heilsa þeim sem við þekkjum.
Hilsen!!!