þriðjudagur, júlí 15, 2008

óvænt

Ég fékk vissuleg óvæntan pakka á laugardagsnóttina hann var svona um 130 cm og sprikklaði. Ég vissi ekki hvað á mig stóð veðrið þarna uppúr tvö þegar að fjögurra ára sonur minn sagði „hæ pabbi“. Ég held að ég hafi aldrei verið jafn hissa, ég varð hissa og svo hrikalega glaður. En þannig að hann Jakob er á Íslandi fram á föstudag kom með ömmu sinni og fer með Hjallabrauta genginu tilbaka á föstudaginn. En við strákarnir ætlum að nýta tíman vel en hann er í pössun á daginn á meðann ég er í vinnuna en síðan taka við sundferðir og strákastöff. En allavega þá vona ég nú að hún Gunnhildur láti undan þrýstingi og hendi inn nokkrum myndum af öllum þeim fjölda sem að hefur heimsótt hana undanfarið.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mikið svakalega er drengurinn hávaxinn, samkvæmt þessum upplýsingum er hann nánast jafnstór Baldvini frænda sínum. Hann nær greinileg að fela þetta svona vel ;)