Þetta er ekki tekið út með sældinni ég skal segja ykkur alla söguna eða svona næstum því alla. Þetta byrjaði allt á góðviðris degi í júní nánar tiltekið þann sautjánda júní á afmæli Jóns Sigurðssonar og jafnframt á 168. degi ársins. Að ég tékkaði mig inn á Kastrup flugvelli ég var græn á bakvið eyruna hvað átti eftir að gerast enda ekki ferðast í smá tíma. Eftir innskráningu er mér leiðbeint í þar tilgerða röð og var vísað áfram þangað til ég var komin út í vél. Við tókum á loft á réttum tíma að mér fannst, en þar sem að ég geng ekki með úr þá gat ég ekki verið viss. Þegar að við lendum þá var ég á stað sem að ég hafði séð áður að ég held. En var ekki viss um að ég ætti að vera þarna. Ég fylltist ótta en ákvað að harka af mér og hef verið að harka af mér í heila viku. Ég er búin að vera að drepast úr söknuði en nú er því lokið ég er komin heim.
Það tekur á að vera taskan hans Sigga
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hæ hæ elsku fjölskylda - allt of langt síðan ég hef kíkt hingað inn. Friðrika er æðisleg með stutta hárið. Þvílík fegurðardrottning! Og örugglega flottasti húllari Danmerkur og þótt víðar væri leitað. Mikið hafa þessar stelpur gott úthald. Ég reyndi að húlla um daginn eftir margra ára pásu og það kom mér sko verulega á óvart hvað þetta er erfitt :)
Siggi kom við í afmælinu hennar Þórdísar og gaf henni örugglega vinsælustu gjöfina þar sem hann hafði límt nammi utan á pakkann! Takk fyrir okkur koss koss og koss.
Skrifa ummæli