Annars er lítið nýtt að frétta. Friðrika fékk útskriftarskýrteinið sitt í gær við hátíðlega athöfn sem haldin var í skólastofunni hennar. Nú er hún sem sagt búin með "Børnehave klasse" eða núllta bekk. Krakkarnir sungu fyrir okkur og svo var þeim afhent mappa með samansafni af myndum og atburðum liðins árs auk skírteinisins. Þetta var allt mjög sætt. Ég var reyndar alveg búin á því þegar heim kom og þakkaði Guði fyrir nihola hjólið (eins og Kristianíu hjól) þeirra Möggu og Svenna. Ég veit annars ekki hvernig ég hefði komið okkur öllum heim á einu venjulegu hjóli með köku, heitan rétt og tvö börn. Það hefði allavega verið skrautlegt. Þetta var búin að vera langur og strangur dagur og ég var svoooooo fegin þegar þau sofnuðu og ég gat hent mér í sófann til að slökkva á heilanum. Og viti menn lenti inná bara helv... góðri mynd sem ég hafði ekki séð áður!!!!!! Hún heitir Moonlight Mile og kom bara skemmtilega á óvart.
Í dag fórum ég og Jakob í dýragarðinn því hann er búinn að vera í fríi alla vikuna og ég lítið getað gert með honum. Það var svo margt nýtt að sjá, t.d. nýja flotta svæðið sem fílarnir eru búnir að fá og fullt af nýjum litlum krílum (glænýr kópur og litlir otra ungar) og breytingar í Tropizooinu sem er uppáhaldið mitt, þ.e.a.s. skrið- og skordýra hlutinn. Einnig voru birnir mjög líflegir í dag og tók ég nokkrar myndir þar sem þeir voru bara í því að stilla sér upp : )
Ég fékk boð um atvinnuviðtal í dag hjá Danisco á mánudaginn þannig að ég krosslegg fingurna. Alltaf gott að ná allavega inní viðtal hér þar sem það eru svo margir um hverja stöðu. Vona bara það besta og mæti súper jákvæð og tilbúin til leiks ; )
Ég læt fylgja nokkrar myndir frá liðnum dögum, njótið vel.
Kv. Gunnhildur og co.









5 ummæli:
hæhæ
gaman fá fréttir mín kæra. Já, við tekur grasekkjulíf hjá þér, en það er nú ekki vandamálið hjá þér :)
Hvað er Danisco ?
Og til lukku með dugnaðarforkinn hana Friðriku, barasta búin með núllta bekk, finnst það baraaa krúttlegt :)
Góða helgi kella
Ragga
Hæ hæ
Gaman að heyra frá þér og þínum og sjá myndir.
Vonandi færðu vinnu, og já hver er staðan hjá Danisco?
Verður ekki eitthvað um gestagang og svona hjá ykkur í sumar?
kv. María
Hæhæ
Æ hvað það er gaman að fá svona mikið af myndum! æði.
Gangi þér vel með Danisco en mig langar líka að vita hvað það er.
Til hamingju til Friðriku, hún er svo dugleg!
Sæl elsku frænka.
Ég var að skoða myndirnar hjá ykkur - algjört æði og hulla myndbandið er á við góða gamanmynd!! Mér finnst ein myndin af ykkur Lindu svo skemmtileg því mér hefur aldrei þótt þið líkar en þarna eru þið greinilega systur.
Knús og kossar til allra.
Linda Rós M frænka
Skrifa ummæli