Vá hvað er að frétta jú kannski ekkert sérstaklega mikið en ég er í prófstressi kominn með blæðandi magasár og krónískan niðurgang en vona að það fari eftir vörnina á mánudaginn. Gunnhildur er á fullu að leita sér að vinnu en einhvernvegin þá er allt svo hægt hérna að það er bara ótrúlegt. En ég er viss um að hún fái eitthvað að gera.
Krakkarnir eru í essinu sínu þar sem að það er búið að vera hreint út sagt frábært veður síðustu vikur. Og skemmst frá því að segja að þegar að Linda og Ásta voru hérna þá þurftum við bara að fara inn annað slagið til að hvíla okkur frá sólinni.
Vorum á sumarhátíð hjá Friðriku nú á föstudaginn, Friðrika var húllahoppstelpa og var með í atriði sem að má sjá hér að neðan.
Jæja þá er ég bara alveg orðinn blank læt fylgja nokkrar myndir.
5 ummæli:
Gaman að sjá þig Gunnhildur !!
Rosalega eruð þið hressilegar þarna úti í DK sólinni.
Mig langar að fara í pils, opna einn kaldann og chilla úti í góða veðrinu líka.
Kv. María
Ohhh.....maður er alveg með tárin í augun að sjá hana Friðriku húlla, ekkert smá flott hjá henni. Sitjum hérna með sólskinsbros á vör eftir að hafa horft á þetta.
knús og kossar
Linda og familía
En gaman að sjá myndir ! ég er alveg sammála Maríu, ég alveg sama fiðring.... en við bara drekkum kóka kóla í í rokinu og bíðum okkar tíma.... bú hú.
Flott hárið á þér Gunnhildur á fyrstu myndinni! kúl...
HÆHÆ
jii hvað pæjan er góð í húlla :)
og já flott á þér hárið, svona bylgjur fara þér rosa vel.
Og.....til hamingju með daginn kæru hjú :)
Halló Flotta stelpa
Þú ert aldeilis frábær með hringinn það er spurning hvort þú takir ekki ömmu þína í læri, hver veit nema að það leinist mitti þarna einhvers staðar. hlakka til a koma aftur með afa nú eru bara dagar.
kossar amma
Skrifa ummæli