laugardagur, júní 07, 2008

Þegar að maður býr svona erlendis þá fer margt framhjá manni sem að er að gerast á Íslandi. Fólk er mis duglegt að senda manni fréttir af sjálfu sér, þó fær maður alltaf einhverjar fréttir. Bloggsíður og Barnaland er einn máti sem að maður getur fylgst með vinum og vandamönnum. Og ef að maður er ekki með Facebook,myspace eða alltaf inn á msn þá missir maður af sumum. En það sem að mér þykir alltaf jafn skemmtilegt það er að sjá góðar og fyndnar auglýsingar eins og þessar.





VARÚÐ SMÁ PIRRINGUR

Íslensk vefblöð skoða ég á hverjum degi og fylgist svo með mbl og visir allan daginn í von um uppfærslu á fréttum líðandi stundar.

Las að Geiri nektarbúllukóngurinn voru greiddar skaðabætuR upp á eina miljón vegna álitshnekks sem að hann varð fyrir er Ísafold skrifaði um meint mannsal á nektarstað hans.

Stöldrum nú aðeins við þetta á.
mbl.is þann 31,03,08
Var frétt um mann á áttræðisaldri sem var dæmdur fyrIr að misnota tvær stúlkur sem að voru á aldrinum 10 til 12 ára. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi og til að greiða annari stúlkunni 700þús og hinni 500þús.

Frétt síðann 03,04,08
Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í átta mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðbundið í þrjú ár, fyrir fjórar líkamsárásir gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni og húsbrot. Þá var hann dæmdur til að greiða konunni 900 þúsund krónur í miskabætur.

Í þessum þrem málum þá þykir Héraðsdómi Geiri hafa beðið meiri hnekk en stúlkurnur sem að voru misnotaðar og konan sem að varð ítrekað fyrir líkamsáráum fyrverandi kærasta.

Er þetta virkilega svona er Héraðsdómur með Exceel skjal þar sem að þeir fétta upp ákveðnu máli og ákvarða upphæð. Eða eru þetta bara geðþóttatákvarðanir hverju sinni. Ef svo er þá þarf virkilega að fara að taka þetta kerfi í gegn og fá óháðan aðilla til að fara yfir hvernig svona ákvarðannir eru teknar.

Afsakið allar málfarsvillurnar

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þokkalega sammála... algjör mafíósastarfsemi.
hlökkum ógisslega til að koma eftir nákvæmlega 25 daga :) þá verður þú reyndar kominn á klakann Siggi minn... þú verður auðvitað að byrja á því að kíkja í mat til okkar :)
kv, Nanna

Nafnlaus sagði...

Kvitti kvitt. Bara svo að þið vitið að ég er að fylgjast með :-)

Nafnlaus sagði...

jamm me2 :):)

hvernig ganga skólarnir og daglegur rekstur ??