sunnudagur, maí 18, 2008

sein

Vöknuðum í gærmorgunn hrikalega fersk því að það átti að taka myndir af systkinunum á leikskólanum hjá Jakob. Allir þurftu að baðast og var Jakob fyrstur þar sem að Friðrika var ekki heima því hún svaf hjá honum Óla stórvini sínum. Þegar að hún loksins kom yfir þá hentumst við í sturtu og þvoðum okkur hátt og lágt. É meðan var Gunnhildur frammi að koma sér og Jakob í betri fötin.

Þetta var algert kapphlaup við tímann og ekki máttum við missa af myndatökunni sem að við pöntuðum en allt hófst þetta og við vorum komin úr húsi klukkan 10:25 en mæting var 10:30. Við hjóluðum eins og vindurinn, þegar við komum að leikskólanum hans Jakobs þá fannst okkur óvenjumikill kyrrð á svæðinu. Það var líka skýring á því þar sem að myndatakan er næstu helgi.

Á miðvikudaginn er Jakob að fara í Koloni með leikskólanum og gistir í tvær nætur þið getið ýmindað ykkur spennuna að fara í ferðalag með öllum vinunum án mömmu og pabba.
Drengurinn er búinn að kaupa sér svefnpoka,nýtt nestisbox og brúsa og fer að verða tilbúinn til brotfarar. En hann vill helst fara núna því það er varla hægt að bíða, mjög algeng spurning þessa dagana er „er ég núna að fara á koloni“.

Engin ummæli: