miðvikudagur, maí 21, 2008

Kaupmáttur

Verð á matvöru á Íslandi er 64% hærri en að meðaltali í ESB-ríkjunum samkvæmt. Kaupmáttur launa rýrnaði um þrjú prósent milli mars og apríl í ár. Verðbólgan er 11,8% samkvæmt Seðlabankanum.

Og flugfreyjur voru að semja um 3,3% launahækkun til hamingju.

Er ekki eitthvað bogið við þetta allt saman? Til að mynda þá eru hjúkkur í verkfalli hér í DK og þær vilja fá 15% hækkun á launakjörum á næstu þrem árum( sem að þær eru ekki búnar að fá en eru búnar að fá tilboð uppá 12,9%) og verðbólgan hér er undir 4%.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jú sigurður það er ansi erfitt að´fa´2 plús 2 til að verða 4 hér á gamla fróni þessa dagana. annars er allt bara þokkalegt, við systkinin hittumst öll niður í firði í morgun í kaffi og það er meira að segja er til heimildarmynd. nanna kom líka með gutta sem lék á alls oddi allan tímann. hlakka til að hitta ykkur eftir nálvæmlega 14 daga. kysstu börnin og frúna
kv
tengdó