þriðjudagur, maí 27, 2008

Oft höfum við hjónin verið að tala um hvað það sé merkilegt hvað lögreglan hér í Köben nýtur mikillar virðingar. Persónulega held ég ekki að það sé vegna þess að þeir eru með byssur heldur vegna þess að þeir eru svo hrikalega kurteisir og almennilegir.
Þegar að manni vantar upplýsingar varðandi eitthvað þá er ekkert mál að snú sér að lögregluþjóni og spyrja spurninga og þeir hjálpa eftir bestu getu.

En afhverju fær lögreglan á Íslandi ekki meiri virðingu en raun ber vitni ja kíkið á myndbandið hér fyrir neðan þar sem að lögregluþjónn ræðst á ungann mann út af engu er virðist vera.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mér finnst þetta alveg sorglegur atburður bæði fyrir drengina en einnig fyrir embætti lögreglunar. Þessir strákar eiga líklega aldrei eftir að líta á lögreglumenn í sama ljósi, heldur þá frekar með vantrausti og jafnvel fyrirlitningu. Fyrir embætti lögreglunar er þetta mjög stórt skref aftur á bak hvað varðar almannatengsl og einnig þar sem þetta embætti á að standa fyrir öryggi, trausti og áreiðanleika. Þetta myndband sýnir einnig enn og aftur að það eru ekki allir starfi sínu vaxnir og það mætti alveg gera meiri kröfur til þeirra sem sækjast í að þjóna í lögreglunni, þ.e. að andlegt jafnvægi sé í lagi og að fólk geti unnið undir miklu álagi. Maður hlýtur einnig að spyrja sig, hvað næst ekki á myndband?

Nafnlaus sagði...

Þetta atvik er nátturlega sláandi þótt maður viti ekki hvað gekk á fyrir. En það er aldrei réttlætanlegt af lögreglunni að missa sig og beita ofbeldi eins og því miður oft gerist. Held samt að þetta gerist í Danmörk alveg eins og á Íslandi, bara meira sýnilegra í litlu samfélagi eins og Ísland er.