Það er ótrúlegt hvað sumir dagar geta verið frábærir það bara gengur allt upp og maður hugsar vá ég verða að kaupa lotto miða.
Í morgunn skein sólin í andlitið á okkur er við fórum með krakkana í skólana sína. Þegar að við vorum hálfnuð tilbaka mitt á milli kirkjugarðsins og Sólbakkans þá ákvað ég að skrópa í skólann. Ástæðan jú við ætluðum að fara að tala við fasteignasalan sem að er með húsið á Valbylangade 10 til sölu. þetta er hús byggt í kringum aldamót bara svona týpískt danskt múrsteins hús og hefur verið haldið vel við bæði að utan sem innan. Við erum búin að vera að liggja á gluggunum undanfarið látandi okkur dreyma um að þarna sé okkar framtíðaheimili. Og erum meiri að segja búin að fara inn og tala við eigendurna. Þetta er bara svona fín stærð af húsi og er á góðum stað ekki ofaní miðbænum en ekki of langt frá.
Á leið okkar til fasteignasalans ákváðum við að stoppa og fá okkur kaffibolla, við ræddum um hvað ef að við getum keypt það og hvað ef og hvað ef ekki, margar spurningar voru ræddar og færri svör komu. Við vorum bæði hrikalega spennt og létum eins og við hefðum alveg efn á þessu öllu saman.
Hjá fasteignasalanum var tekið hrikalega vel á móti okkur og þá er ég að tala um bakkelsi og þetta líka lúxuskaffi á meðan að við biðum. Korteri seinna kemur maður svona um fertugt og kynnir sig kemur ekki á óvart að hann skuli heita Mads, held að það sé algengasta nafn hér í danmörku.
Hann er alveg hrikalega kurteis og spyr okkur um hvaða eign við höfum áhuga á, hann var greinilega búinn að gleyma að ég hringdi í hann í síðustu viku til að forvitnast um eignina nem allt í einu segir hann „já jú nú man ég þú ert sá sem að talar íslensk-dönskuna“. Ég játa því en roðna líka um leið og þar sem að hann tekur eftir roðanum er hann fljótur að bæta við „en ég skildi allt sem að þú sagðir“. Þið eruð hér útaf fasteign 15893247 sem að er númerið á húsinu. Við játum bæði og hann segir okkur hve frábært húsið er og tyggir allar staðreyndir ofaní okkur eins og hver sé arkitekt hverjir voru meistarar og þar fram eftir götunum. En svo loksins kemur að því að fara að tala um peninga hann biður okkur um að fylla inn allskonar upplýsingar varðandi fjárhag og þess háttar.
Því að kerfið hér er ekki alveg það sama og heima, heldur er bara gert ráð fyrir að maður þurfi að lifa og eiga líf utan vinnu.
Mads skoðar þetta allt vel og segir heyriði ég verð aðeins að hringja í bankann og leggja þetta undir hann. Við bíðum inná skrifstofunni hans ég hafði orð á því að ef að við hefðum verið á íslandi þá hefði fasteignasalinn bara kannað stöðuna okkar í gegnum tölvuna, en danir eru svo mikil pappírsþjóð að það er engu lagi líkt. Tíu mínútum seinna kemur Mads inn og segir samkvæmt þessu hér hafi þið ekki efn á húsinu en ég hringdi í eigendurna og þau eru til í að lækka húsið um fimmtíuþúsund dkk og þá er allt klappað og klárt.
Nema að þegar að þetta hefur gengið í gegn þá verði þið að vera tryggð hjá bankanum ykkar og sína fram á 2500 dkk meiri veltu á mánuði sem að er nú alveg hægt því ég er búinn að vera að vinna smá fyrir VSÓ og gæti bara aukið við mig verkefnum. Vá við erum orðin eigendur af 200 fermetra húsi og megum flytja inn eftir mánuð og það sem að meira er þá hringdi ég í leigjendurna okkar á Suðurbrautinni til að segja þeim upp leigusamningnum. Þá sagði Kalli mér sem að er að leigja að þau vilja kaupa íbúðina okkar á markaðsverði þannig að þegar að það er gengið i gegn þá eigum við 75% í nýja húsinu okkar og afborganir á mánuði eru minni en leigan á íbúðinni sem að við erum í núna. Vá hvað allt gengur vel sum bíbíbíbíb bíbíbí bíbíbí ojj vekjaraklukkan farin í gang ég þoli ekki þegar að manni dreymir svona raunverulega drauma. En allavega þetta dreymdi mig í nótt njótið vel
þriðjudagur, maí 13, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
vó! ótrúlega vel útfærður flókinn draumur fullur af smáatriðum! úff og ég man ekki einu sinni hvort mig dreymdi yfir höfuð, hvað þá hvað ! Heyrðu, get ég kannski lagt fyrir þig spurningu og þú bara dreymir svarið, sendir mér á pósti og allt klappað og klárt ? Það væri töff.
Ekkert mál Hanna sendu bara spurninguna og ég skal gera mitt besta:)
æjjj en fallegur draumur, á marga svona:) kv. magga stina
Ertu búin að láta ráða hann ?? Er tengdó ekki sérfræðingur í draumráðningum ?? ;)
Reg
HA HA HA HA HA HA GÓÐUR ÉG VAR ALVEG AÐ KAUPA ÞETTA
KNÚS TinNA OG GÓÐA HELGI
Hæ hæ og til hamingju með afmælið um daginn Jakob Freyr. Ó millí hvað þau eru sæt! Ég mundi allt í einu eftir ykkur (þið viljið gleymast af því að þið eruð ekki í barnalandsrúntinum) af því að ég heyrði lagið hans Mika í útvarpinu og nú heyri ég alltaf í Friðriku syngja þegar Mika er spilaður.
Hilsen, Valborg
Skrifa ummæli