Jæja komum okkur nú að efninu og það sem aðer helst í fréttum er að hún Friðrika var að missa fyrstu tönnina. Nema hvað að hún missti hana í grasið þegar að hún var að skoða hana. Og þrátt fyrir að allir hafi lagst á fjórar fætur til að leita þá fannst hún ekki sem að er frekar fúlt. Engu að síður er hún rosalega stolt af þessum tímamótum og notar hvert tækifæri til að sýna holuna.
Í dag fórum við svo niðrí með krakkana þar sem að þau voru með takmark og það var að kaupa sér dót fyrir peningana sem að þau áttu. Allt tókst það á endanum og nú er Jakob sverði, Indiana Jones legoi og H&M poka ríkari. Friðrika fékk nýjan bangsa sem að hægt er að pakka saman í bolta, H&M klæði og vatnsbyssur. Þannig að þetta var ferð til fjár hjá þeim. En jæja ætla að fara að koma mér út í veðrið. Læt fylgja með nokkrar myndir síðan í gær.
4 ummæli:
Til Hamingju Friðrika með að vera búin að missa fyrstu tönnina... bráðum verða þær allar dottnar og þú alveg tannlaus! Nei ég er bara að grínast í þér. Hvenær ætlaru svo að fá þér fullorðins?
Frábært að sjá holuna! Nú er hún orðin svo stór stelpa. En átti Friðrika ekki fullt af peningum þá, frá tannálfinum, svona miðað við gengi íslensku krónunnar.... hún hlýtur að frá greitt eftir íslenska taxtanum.
Gaman fyrir ykkur þetta með veðrið, ekkert rosalega gaman fyrir okkur hin sem verðum bara að horfa á myndir af því....
Já til hamingju með fyrstu tannleysuna Friðrika mín ! Þetta eru sko tímamót.
Björgvin Skúli er einmitt með tvær lausar tennur í neðri góm og bíður óþreyjufullur eftir að þær detti.
Ohhh hvað þið hafið það gott í hitanum og sólinni. (öfund).
Var að velta fyrir mér einu samt, hvað er að mála gíra? Er ekki að fatta....:)
kveðja, María
Heyrumst og biðjum að heilsa öllum.
Mála gíra og græja:
Mála: Skipta um lit á báðum svölunum
Gíra: Vera með puttana á púlsinum hvað mætti betur fara í 50m2 íbúðinni hönnunarlega séð
Græja: stússast í öllu mögulegu sem að gefst aldrei neinn tími í.
Svo vonum við að fá fréttir þegar að tannálfurinn kemur til að vitja tannana
Sólarkveðjur
Siggi Andri
Skrifa ummæli