

Þá eru fjögur ár liðin frá því að Jakob Freyr fæddist, haldið var uppá afmælið í gær með vinafólki okkar hér á Sólbakkanum sonur þeirra hann Kristján Daði verðu þriggja ára á morgunn.
Veislan gekk eins og í sögu þar sem að sú gula átti mikinn þátt í því það voru grillaðar pylsur,borðaðir ostar og frábærar kökur. Hitinn steig í 20 gráður samkvæmt óstaðfestum heimildum.
Drengurinn fékk allt milli himins og jarðar það voru sverð. Golfsett og meiri að segja fjársjóð svo eitthvað sé nefnt.
Til lukku með daginn Jakob
Mamma og pabbi
8 ummæli:
Elsku Jakob Freyr,
innilega til hamingju með daginn þinn í gær og ég efast ekki um það að hann hafi verið skemmtilegur og vel heppnaður :)
Knús kveðjur frá okkur
Ragga,Haffi,Hrafnkell og Arnheiður
Innilegar hamingjuóskir til ykkar allra í tilefni dagsins!
Afmæliskveðja
Hanna Jóna og Daði Freyr
Hamingjuóskir elsku kallinn minn aftur, mikið er kakan flott henni mömmu þinni er sko ekki fysjað saman, mikið vona ég að sú gula verði gjafmild þegar við afi komum út
stórt knús til ykkar Friðriku
amma
Til hamingju með afmælið Jakob Freyr, ekkert smá flott hjól, ekki slæmt að vera í Danmörku núna : )
Afmæliskveðjur frá Hrafnhildi Ásu og Degi Ara
Gamla settið biður svo að heilsa hinu gamla settinu : )
Elsku fallegi frændi
innilega til hamingju með afmælið í gær. flottar gjafir sem þu hefur fengið
knús til allra ..ég fylgist með ykkur reglulega
knús Tinna
til hamingju med fallegann pilt, frá afmælissystur thinni henni karólínu og audvitad ma, pa og systrum í århus:)
Takk kærlega fyrir okkur i frábærlega afmælisveslu,
kv Linda, Peter og Horsensgenginu
Skrifa ummæli