föstudagur, maí 02, 2008

sko

FL Group og Flaga farin af markaði,verðbólgan í botni ísböjrninn Knútur með geðbilun.
Hverjum er ekki sama þegar að Jakob kemur sér og sigrar. Haldið ekki að drengurinn hefi sest uppá hjólið sem að við hjónin gáfum honum og hjólaði eins og leiðin l+ag að leikvellinum og til baka án þess að stíga feil spor. Jú hann er duglegur drengurinn og allar óþarfa áhyggjur móðurinnar um að hann gæti ekki hjólað farnar úr um veður og vind. Við hjónin fáum ekki nóg af því að tala um hvað hann er duglegur að hjóla og nú fær hann ekki nóg af því. Honum langar að fara í skólann sinn þó svo að það sé frí í von um að vinirnir verði þar til að sjá hann renna í hlað á nýja spidermann 3 hjólinu. Stóra systir hjólar á eftir honum annað slagið til að kenna honum bæði skrifaðar og óskrifaðar reglur hjólamenningar Vesterbro. Það er gott að eiga systir sem að sér um mann ha.

Annars er það að frétta að gunnhildur tók sig til og gerði andyrið að öðrum vettvangi með einungis málinga slettum g gumagæfni að vopni, það er margt sem að hún getur gert þessi stelpa, ég er bara þessa dagana að l´ra og reyna að halda mér á floti. Já halda mér á floti það er meira en að segja það að lesa og lesa alla daga þá mundi ég næu frekar þurfa að parketleggja heilu húsin.

Jæja þangað til næst
Hilsen fólkið frá




2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hann leynir á sér þessi prins, áræðið hefur hann allavega ekki frá móðurinni, hjálpadekkin voru höfð á miklu lengur en þurftir hjá heni, gamla passasemnin (friðrika)læt þetta duga í bili kíki aftur á morgun í tilefni dagsins.

knús og kossar
ammma

Nafnlaus sagði...

Hæhæ.
Gaman að heyra hvað drengurinn er duglegur, hér á heimili er ungur maður sem vildi hafa hjálparadekkin miklu lengur bara til ÖRYGGIS....
Þetta með umferðarreglurnar fær mig til að hlæja vegna þess að Friðrika er greinilega eftirmynd móður sinnar, minnir mig á hjólatúrinn okkar á síðasta ári þar sem Gunnhildur var að kenna mér reglurnar, þú veist gefa stefnuljós með höndum, læra á bjölluna og síðast en ekki síst var lengi leitað af ljósi til að komast heim hífaðar eftir tjúttið, hjólandi :-)
Kveðja af skerinu
Hanna Jóna