mánudagur, mars 03, 2008

Helgin sem leið

Outfit laugardagskvöldsins
Helgin sem leið var stútfull af skemmtun og góðum mat.

Á föstudaginn kom Mikki bróðir hennar Gunnhildar í heimsókn og drukkum við eðal danska gosdrykki og borðuðum hrikalega góðan tælenskan mat saman. Seinna um kvöldið var farið uppá 11 hæð á Solbarinn þar sem margt var um manninn, enda er þetta aðal staður skemmtilega fólksins á föstudagskvöldum.
Kvöldið endaði rétt um miðnætti.

Dagurinn eftir skiptum við liði, ég fór með Jakob í afmæli til vinar síns, hans Mustafa af leikskólanum, og Gunnhildur fór í búðaráp með Friðriku og Mikka.
Klukkan sex var krökkunum skutlað í næturpössun til Hjölla og Hildar. Því okkur var boðið í mat til Eiríks og Emblu og tvöfalt þrítugsafmæli hjá Hrönn og Runólfi.

Byrjum á 5 stjörnu máltíðinni sem að Lokal 65 bauð uppá. Þar var á ferðinni kjúklingur með tælensku yfirbragði sem var bara eiginlega betri en tælenska máltíðin sem að var snædd kvöldinu áður. Eiríkur Steinn var einnig mættur í boðið en því miður hafði betri helmingur hans skellt sér í ættjarðar heimsókn og missti því af kræsingunum. Enn og aftur takk Eiríkur og Embla fyrir frábæran mat og enn betri félagsskap,

Því næst var farið í tvöfalda þrítugs afmælið. Og ég held að ég geti ekki lýst því með orðum hversu skemmtileg veislan var, þannig að því að reyna, but here goes. Við vorum bæði sammála um að við höfum sjaldan farið í svona skemmtilega veilsu þar sem allir mættu með góða skapið, léttleika, klárir til að gera kvöldið eftirminnilegt. Og það heppnaðist svo sannarlega. Ekki skemmdi að þema veislunnar var Hawaii og nær allir mættu í viðeigandi múnderingum. Svo voru leikir og gaman, en það sem toppaði kvöldið og hélst nærri fram á morgun var þegar Haffi með gítar í hönd og Guðjón við píanóið byrjuðu að spila klassíska slagara við frábærar undirtektir allra gesta. Þar mátti heyra allt frá Bubba til Billy Joel. Við viljum skila kveðju til allra sem mættu og segja 'takk fyrir síðast' þetta var æði.



4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Einstaklega myndarlegt par. Virkar ógeðslega gaman hjá ykkur hefði alveg vilja vera með : )

Nafnlaus sagði...

Einstaklegt myndarlegt par. Greinilega gaman miðað við myndina, hefði alveg verið til í að vera með ykkur : )

Nafnlaus sagði...

Já ok einhver ritskoðun í gangi var ekki alveg að ná þessu......

Nafnlaus sagði...

er ekki bara vit í því að halda allsherjar grillpartí í sumar þar sem baunabúarnir allir koma í sumar ??