Ipodinn og ég erum alveg óaðskiljanlegir þegar að ég þeysist um hjóplastígana hér í Köben. Þegar að ég er að hjóla þá hlusta ég yfirleitt á einhverja plötu sem að hentar tilteknum degi og skapi.
Nú nýverið ákvað ég að lifa á brúninni og hlusta á 25 mest spiluðu löginn í hlöðunni. Og mér til mikillar undrunar kom lagið lollipop með Mika. Ég skildi ekki afhverju því þetta er ekki það sem að ég hlusta á og í raun ætti ekkert að vera til í tónhlöðunni (ipodinum) það er svo önnur saga. Ég var gjörsamlega búinn að hugsa allar samsæriskenningar afhverju ipodinn minn virkaði ekki og kæmi mér ekki á óvart ef að Steve Jobs hefði verið með smá hiksta í gær.
Hvað um það þá fór ég að rannsaka málið tók meðal annars hlöðuna í sundur og ekki reyndist vera um bilun í búnaði. En ég komst á slóðini þegar að Friðrika labbaði til mín og sagði „elsku pabbi má ég hlusta á músík tækinu þínu“ .
6 ummæli:
Þessi elska hún Friðrika er sko lik mér í sinni og skinni, hún er bara dásamleg og sver sig í móðurættina (hæfileikarnir). Hér er kuldi kuldi og kuldi semsagt mjög gott pelsaveður.
love you all
amma
hahahah omg hún er svo mikil showgirl þessi krúttkelling !!!!!
Loksins, myndir og kannski fréttir endrum og eins ! Ánægð með endurræsingu bloggsíðunnar.
Já, jii hún Friðrika sko hahaha ég tek undir með Röggu. Algjör dúlla.
Gott að heyra að allt gengur vel hjá ykkur og börnin stækka og blómstra. Flottur hann Jakob með lokkinn, algjör gæji.
Kveðja, Broadway gang.
Ekki klikka á linka sem að fólk er að skilja eftir hérna því að þetta gætu verið vírusar. En allavega gamann að sjá hvað það kunna margir að commenta
Flott skvísan og klárlega með hæfileika móðurinnar og krúttlegheit föðurins. Ég vek ahtygli ykkar á leikritinu okkar Gunnhildar sem ég fann um daginn og rifjaði upp á síðunni minni.
ha ha ha YNDISLEG þessi elska
endilega ná fleiri upptökum af henni
knús Tinna frænka
Skrifa ummæli