Jæja þá loks sest maður við skriftir enn á ný ekki það að neitt markvert hafi gerst síðan síðast heldur bara þörfin til að skapa rekur okkur áfram.
Við höfum verið heldur róleg í tíðinni og reynt að njóta samveru hvors annars. Skelltum okkur öll í dýragarðinn síðasta laugardag með nesti og alles og kíktum á flóðhesta og fleira. Eyddum þar nærri heilum degi, sem er alltaf jafn gaman. Sunnudagurinn var ekki eins viðburðaríkur en smá hreyfing engu að síður. Við mættum á fælles morgunmat uppi á 11. hæð og var þar margt um manninn. Síðan var farið heim, spilað og haft það kósí. Siggi hjólaði á Paradis og keypti fullt af ís og svo var horft á Star Wars að ósk Jakobs. Ekta letidagur.
Friðrika komst loks í skólann í gær þar sem hún var búin að vera veik meirihluta síðustu viku og svo var frí í skólanum hjá henni á mánudaginn. Hún var farin að sakna pínu vinahópsins sem við fengum að vita í kvöld, á foreldrafundi á frítids-heimilinu, er kallaður De Fantastiske Fire. Þetta viðurnefni fengu þær því þær eru alltaf fjórar vinkonurnar saman, leikandi sér í sínum eigin hugarheimi og víkja vart frá hvor annarri. Allt sem við fengum að heyra um hennar daglega líf á 'fríddaranum' var mjög jákvætt og áhugavert enda ekki við öðru að búast.
Jakob er alltaf jafn eiturhress, er að fara með leikskólahópnum sínum í dýragarðinn í fyrramálið og hlakkar mikið til. Einnig er hann byrjaður að tala mikið um 'kolonie' ferðina sem er í maí. Þá fara allir krakkarnir á leikskóladeildinni í þriggja daga ferðalag upp í sveit bara með fóstrunum. Þetta verður í annað skiptið sem hann fer í slíka ferð, en í fyrra, þegar systir hans var með, var maður samt með smá hnút í maganum yfir að senda börnin sín ein í burtu. En þeim fannst þetta algjört æði og ætli það sé ekki góðs viti að honum er strax farið að hlakka til ferðarinnar í ár.
Nú eru rétt rúmir tveir dagar þar til við förum í sumarbústaðinn með Solbakka genginu, núverandi og fyrrverandi. Fyrsta mál á dagskrá er að leigja bíl, búið að greiða bústaðinn og krónan alveg að gera út af við mann. Ef einstaklingur gæti barist við gengi krónunnar þá ætti hún á hendur sér lítið stríð frá íslendingum búsettum í Danmörku. Í hvert skipt sem maður kíkir á gengið er þetta líkt og að lesa skáldsögu, hugsar maður með sjálfum sér, því þetta einfaldlega er ekki að gerast. En þrátt fyrir væl, þá líður okkur vel í Danmörku.
Svo eftir viku í bústað mun gleðin halda áfram því þá mun Ásta Lín og fjölskylda hennar heiðra okkur með heimsókn. Það getur ekki klikkað, jeeeiii : )
Vildi koma smá upplýsingum á framfæri um staðsetningu okkar næsta sumar. Sem sagt, Siggi verður að mestu á Íslandi en vonandi með annan fótinn (sætti mig við tá eða hæl) í Danmörku, en ég verð í Baunalandi allt sumarið, until further notice! Eins gott að sólin verði réttu megin við hafið.
Og svona rétt í lokin:
"Elsku Sessó velkomin í fullorðina manna tölu. Vonandi áttirðu góðan dag. Risa knús."
"Innilega til hamingju með áfangann Embla. Or should I say Doctor Embla!!!!!"
miðvikudagur, mars 12, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Halló elskurnar allar saman.
Alltaf gaman að fá fréttir, ég vil samt helst fá myndir daglega, smá frekja. Allir kátir og hressir á Fróni, hlakka bara til að fara í páskafrí.
Skemmtið ykkur vel í bústaðnum.
1000 kossar og knús til barnanna (og ykkar)
luv
mamma
hæ flottu... gaman að bloggið er kominn í gírinn aftur!! mig dreymdi draum um daginn.. að við hefðum bara ákveðið að flytja til ykkar til DK... oh.. þetta var eiginlega bara yndislegt, mjög svo raunverulegur draumur.. væri sko alveg til :) hlökkum til að kíkja á ykkur í sumar.. held að það sé orðið 80% ákveðið að við komum :D
love, Nanna and the rest...
Skrifa ummæli