Jæja þá erum við kominn heim eftir vel heppnaða sumarbústaðaferð. Ég held að ég fái svefnverðlaunin þar sem að ég var fyrstur að fara að sofa flest kvöldin. Reyndar var það eitt kvöldið að ég fór með Friðirku á klósettið og bað hún mig að leggjast hjá sér. Og það er ekki séns að rífa sig aftur upp þegar að maður er búinn að liggja undir sæng í hálftíma. Reyndar missti ég af svaka kvöldi en hey að kom annað kvöld sem að var svaka kvöld. Krakkarnir skemmtu sér konunglega enda voru þarna níu krakka. Þau fóru í leiki fóru á safn þar sem að voru uppstoppuð dýr, Sundlaug með rennibraut, fleiri leiki , út á risa róló þar sem að meira að segja voru leiktæki fyrir stórustrákana líka sem að vöktu gríðalega lukku. Þannig að þau höfðu nóg fyrir stafni allan tíman og ekki mínúta sem að fór til spillis. Svo var kvöldunum skipt niður og allir sáu um matinn eitthvert kvöld sem að var gríðalega góð hugmynd. Við hjónin elduðum með Eiríki og Vigdísi Pizzur og voru þær hreint út sagt hrikalega góðar. Einnig fengum við Kjúkling í chilli sósu, purusteik og allra besru hamborgara sem að ég hef smakkað. Og nátturulega fullt af gúmmelaði inn á milli sem sagt glæsileg ferð sem að vonandi verður toppuð að ári.
Þá er bara að slarfa í sig páska matinum sem að þessu sinni er nautakjöt með bearnais sósu og einhverju gúmmelaði.
Ég er að vona að þær sögusagnir sem að ég er að heyra að Álverið sé að loka séu sannar. Og einnig að Alcan hafi selt loðnubræðslunni hf lóðina. Þar erum við að tala um peningalykt. En hugsið ykkur loðnubræðslan þarf ekki að fara í neina kosningu heldur má byggja stærstu loðnubræðslu á landinu án allra afskipta frá hafnfirðingum. Til hamingju hafnfirðingar íbúðaverð mun ekki lækka því loðnufnykur drepur okkur ekki en það gerir heldur ekki mengunin sem að kemur frá álverinu því að hún er nánast enginn. Ég er stoltur og þakklátur fyrir alla þá sem að þykir kúl að vera á móti Álverinu og einnig þá sem að bara eru á móti því.
sunnudagur, apríl 08, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli