mánudagur, apríl 09, 2007

Þekki þið börnin




Já Jakob hefur verið klipptur og ekkert smá. Ég verð að viðurkenna að ég átti erfit með að sjá á eftir englahárinu en þetta kemur bara vel út. Og það sem að mestu skiptir er að hann er ánægður og ekkert smá montinn. Gunnhildur sá alfarið um að klippa hann með vélini sem að ég krúnuraka mig með. Hún er flink stelpan því verður ekki neitað . Svo er það bara Friðrika næst þ.a.s þegar að hún er búinn að ákveða sig hvort að hún vilji safna eða ekki. Þetta er hrikalega erfið ákvörðun og svo í gær var hún að biðja um göt í eyrun. Sem að var tekið upp á fjölskyldufundi og var ákveðið að bíða aðeins. Hún var alveg sátt við það enda alveg hrikalega skýr stelpa. Hún er alltaf að koma okkur meira og meira á óvart. Nú er aðalmálið að hlusta á Gwen Stefani og dansa einnig horfir hún mikið á söngleiki og syngur hástöfum. Ég veit ekki hvort að þið hafið einhvertíman heyrt hana syngja á íslensku þar sem að hún er að skálda texta. Enallavega nú er hún byrjuð á því á dönsku og síðast í gær var hún að spyrja hvort að hún mætti fara að læra á gítar. Veit ekki hvernig ég á að snú mér í því að leita að gítarskóla hér í Cph. Kannski að maður hringi bara í Kim Larssen og plati hann til að kenna henni held samt ekki.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mikið er maður sætur. Það væri gaman að fá að heyra Friðriku syngja:) en svo verð ég líka að segja að það er nú kominn smá Gunnhildarsvipur á hann Jakob, eitthvað sem maður bjóst ekki við.
Hafið það gott kæra fjölskylda og ég hlakka til að sjá ykkur í sumar.

Nafnlaus sagði...

sæt, sætari og ekkert nema sætust þessi börn og klippingin fer honum ekkert smá vel. Ohhh....hvað verður gaman að fá ykkur heim í sumar það er nú orðið ansi langt síðan maður hefur knúsað þessa engla.

Nafnlaus sagði...

altalað í fermingunni í dag hvað Jakob væri flottur ...get hér með tekið undir það kæra fjölskylda. Englalokkarnir á Magnúsi fá þó ekki alveg að fjúka strax. Friðrika mín flottust og mikið hlakka ég til að sjá ykkur í sumar mér finnst heil eilífð síðan ´´eg sá ykkur síðast
knús og kossar
Tinna frænka

Nafnlaus sagði...

Mamma rosa klár með vélina. Ekkert smá sætur töffarinn : )
Dreg í efa hæfni Kims til að kenna pæjunni á gítar, ætli hann sé ekki duglegri við að kenna aðra ósiði...hvað eru aftur börnin gömul í Dk þegar þau fá að kaupa sér öl?

Nafnlaus sagði...

vá, flottur og hann lítur út fyrir að vera sirka 10 ára á þessari mynd eftstu :)
Ekkert smá flott bæði 2 og það verður gaman að sjá þau í sumar :)
Reg

SGFJ sagði...

Já hann er töffari og ekkert smá flottur með svona stutt hár.