miðvikudagur, apríl 11, 2007

Ísland er landið sem ávalt þú ........................................................................................................

Jæja þá er það komið á hreint ég verð að vinna á Íslandi í sumar. Sem að eru bara góðar fréttir því þá getur maður hitt alla tvisvar eða oftar. Og geri ég ráð fyrir að öll fjölskyldan komi í sama holli. Þannig ekki örvænta við verðum heima. Ég mun fara að vinna hjá VSÓ ráðgjöf sem að ég held að verði gríðarlega spennandi og geri ég einnig ráð fyrir að afla mér mikillar reynslu. Ég talaði við tilvonandi yfirmann minn í gær og hann er ekkert smá hress það var meira talað um lífið og tilveruna en vinnuna. Sem að er kostur að því að vita að yfirmaður manns er mannlegur er ómetanlegt. Allavega það eru strax byrjuð að streyma inn boð um heimsóknir og allt að verða upppantað nú fer hver að verða síðastur að tryggja það að við komum í heimsókn til þeirra. Sem að er bara bull því við eigum bara skemmtilega vini sem að við komum til með að heimsækja. Jæaja það þýðir ekki að slá slöku við og ég er farinn í VDA sem að er einhverskonar viðskiptafræði. Svona froðusnakktímar sem að maður bara kjaftar út í eitt frekar skemmtilegt. En allavega blóm og kransar afþakkaðir jarfaför auglýst síðar.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

bíddubíddu.. það vantar kannski aaaaaaaaaaðeins nánari útskýringar þarna... verðið þið þá heima í allt sumar eða??? ég þekki eina stelpu sem var að vinna þarna á vsó ráðgjöf.. hef reyndar ekki hugmynd um hvort hún sé að vinna þar ennþá :)
en gott mál!!
kv, Nanna

Nafnlaus sagði...

Hæhæ... Æðislegt með vinnuna ,til hamingju. En kemur þá öll fjölskyldan ? eða bara þú ? Verðið þið í allt sumar ? og hvar munt þú/þið búa. Ég veit, margar spurningar, en ég hef trú á þér og veit að þú ræður við þær ! og koma svo.....
Kveðja
Hanna panna