mánudagur, apríl 02, 2007

Allt og ekkert

Jæja þá er það komið í ljós hafnfirðingar eru mótfallnir þessu deiliskipulagi sem sett var fram varðandi álverið. Og þykir mér frábært að hafnfirðingar skyldu fá að taka ákvörðun um þetta því svona gengur lýpræði fyrir sig. En það sem að ég hef áhyggjur af eru þær ásakanir að gríðalega margir hafi flutt lögheimilli sitt til þess eins að kjósa á móti álveri. Ég vona svo innilega að þetta sé ekki rétt.

Las á einni bloggsíðu að fasteignaverð á Völlunum mundi hríðlækka ef að stækkunn yrði. Þannig að ég leit inn á fasteignavef mbl. Og vitir menn það er nánast önur hver eign á völlunum til sölu og ekki er það vegna stækkuns álversins. Heldur er bara málið að Vellirnir eru ekki að laða fólk að sér ég persónulega mundi ekki vilja búa þarna. Veit ekki afhverju en það er eitthvað sem að vantar.


En jæja hér er bara komið íslenskt sumar 15 gráður og sól þvílíkir lúxus grilluðum í gær með fólkinu sem að við erum að fara með í bústað um páskana. Og það var ekki að spyrja að því það var nátturulega gamann. Þetta er svo skemmtilegur hópur og allir með krakka og allir krakkarnir nánast alltaf vinir bara svona eins og gengur og gerist. Þannig að ég held að okkar bíði gríðaleg skemmtun um páskana. Við erum búin að panta bílaleigubíl treystum ekki alveg Fordinum hans Kristinns bróðirs. Enda orðin gamall og alveg að fara að deyja þ.a.s bílinn ekki Kristinn.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehe, varð hugsað til ykkar í baunalandi þegar ég sá þessa klippu, er ástandið orðið svona slæmt eða hvað ??
http://www.youtube.com/watch?v=s-mOy8VUEBk

Kær kveðja,
Ragga og liðið

Nafnlaus sagði...

Já þettA ER NÁKVÆMLEGA SVONA

Nafnlaus sagði...

Hva treystur ekiii eðalkerrunni... Góða skemmtun upp í sumó og hafið það kosy : )
kv. Eva og Óli

P.s. Hrafnhildur Ása sendir extra koss og knús til Jakobs

Nafnlaus sagði...

Gleðilega páska kæra fjölskylda, vonandi hafið þið haft það sem allra best yfir hátíðarnar :)
með gulri kveðju úr græna kofanum.
Ragga og strákarnir