mánudagur, apríl 23, 2007

Danmörk VS Ísland

Skrýtið hvað borin er meiri virðing fyrir lögregluþjónum hérna í Danmörku heldur en heima. Ég veit ekki hvað veldur en einhvernveginn eru löggurnar hérna úti mun kurteisari og almennilegri. Mér hefur alltaf fundist lögrgluþjónarnir heima vera fullir af einhverri ókurteisi og með vott af mikilmennsku brjálæði. Það eru reyndar til lögregluþjónar heima sem að eru mjög fínir og fengum við uglingarnir í Breiðholti að kynnast nokkrum þeirra þegar að hverfistöðin í Breiðholti var í fullri starfsemi. Einhvern veginn þegar að ég þarf að fá einhverjar upplýsingar hjá lögregluþjónum heima þá fær maður eitthvað svona lítillækkandi svar. Bara sem dæmi þegar að ég klessti á einu sinni þá nátturulega hringdi ég á lögregluna og þar koma tveir menn (30-35ára). Fyrsta sem að þeir segja við mig og konuna sem að ég klessti á var "Hvað geti þið ekki fyllt út svona blað" og veifaði árekstrarbleðlinum í andlitið á mér. Ég sagði " það er nú ekki eins og maður sé að fylla svona út daglega" þá svaraði hann "nei það held ég að sé enginn" þá svaraði ég " jú lögreglan" hann varð svona hálf vandræðalegur og einhvernveginn breyttist attitjútið hjá honum og hann varð svona viðkunnulegri. Hér í Danmörku eru lögregluþjónarnir áberandi ungir en virðast samt vera lausir við þetta svokallaði mikilmennsku brjálæði sem að mér finnst einkenna íslenska lögregluþjóna. Gæti það verið munurinn að lögreglan hér úti gengur með skotvopn og þarf kannski að ganga í gegnum erfiðari eða bara allt öðruvísi sálfræði próf heldur en kollegar þeirra á íslandi. Veit reyndar ekki hvort að lögreglan heima þarf eitthvað að ganga í gegnum eitthvert sálfræðipróf yfir höfuð. Jú ætli það sé ekki eitthvað pród í lögregluskólanum en hve reglulega atli þau sé svo tekinn eftir að viðkomandi hefur störf og byurjar að verða fyrir áföllum og miklu álagi. Veit ekki en allavega þá hefði ég gaman að því að koma með nokkrar hugmyndir fyrir lögregluna heima. En læt þær bíða betri tíma því ekki vill ég vera að snerta einhverja viðkvæma strengi sem að gætu móðgað marga og vonandi bara móðgaði ég engann þetta er bara það sem að mér finnst.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ hæ Gunnhildur og fjölskylda:) síminn minn er 23608974 og heimasíminn 82509423