Hér í sömu byggingu og skólinn minn er þá er framhaldskóli í kjallaranum svokallaður Htx. Og fá framhaldsskóla nemarnir tölvur á leigu veit ekki hve mikið þau borga en geri ráð fyrir því að það sé frekar sangjarnt verð þar sem að allir eru með eina slíka. En eins og flestir þá eru þessir krakkar ekkert mikið að kaupa sér forrit s.s Photoshop,autocad og hvað þetta nú allt heitir. Nema hvað að það kom hér her manna í gær frá Microsoft að skoða þessr svokölluðu skólatölvur. Og vitir menn það var þvílíkt fát á mannskapnum sem að var með ýmislegt persónulegt í tölvunum. EN þar sem að þau eru ekki eigendur af tölvunum heldur bara leigjendur þá þurftu þau öll að afhenta tölvurnar til skoðunar. Sumir voru heppnir en aðrir lentu í því að heilu prógrömunum var bara eytt. Sem að ég skil alveg og var að reyna að útskýra fyrir einum stráki sem að ég fór að tala við niðrí mötuneyti að hann mætti bara þakka fyrir að fá ekki sekt eða vera kærður fyrir stuld. En tölvan mín hefur ekki verið snert enda er ég bara með lögleg forrit frá skólanum í minni tölvu.
Spurning löglegt eða siðlaust? Mér þykir þetta fulkomlega löglegt enda á maður ekki að stela.
Það verður gaman að ræða þetta við Óla Ara. Því ég get treyst á líflegar umræður.
Vorum að kaupa myndavél þannig að það fara að koma myndir hér inn fyrir ykkur ef þið viljið?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli