Man eftir því þegar að ég fór með vinnubílinn minn gamla í skoðun. Það voru settir allskyns mælar á hann bremsurnar prófaðar svo og öll ljós öryggisbúnaður reyndar var bara allt prófað. Annað hvort fékk maður skoðun eða grænan miða. En ef að maður fékk grænan miða þá þýddi það að það var eitthvað að honum. En skoðunarmennirnir voru svo almennilegir að segja manni hvað væri að. Og hvað maður þyrfti nú að laga til að komast í gegnum skoðun.
Ástæðan að ég er að rifja þetta upp er sú að ég vildi að það væri til svona stöð fyrir mig að það væri bara hægt að plögga mér í einhver tæki og segja svo við mig hey þú kemst ekki í gegnum skoðun. Til að komast í gegnum skoðun þarftu að hætta að drekka gos borða meira grænmeti og ekki hlæja í viku. Það væri æði en staðreyndin er sú að mér er byrjað að líða eins og gamalmenni ég veit reyndar að ég er að eldast en það þýðir ekki að það þurfi allt klikkeríið að byrja bara við 27 ára aldur. Mér finnst bara allt vera að klikka í mér ég er kominn með lélegan maga get ekki borðað eitt stykki jalepino án þess að fá virkilega að finna fyrir því daginn eftir. Ég er byrjaður að fá þvagsýrugigt aftur sem að hefur legið í dvala í nánast ár. Kólestorólið er í ólagi er reyndar að fara í blóðprufu á þriðjudaginn verður spennandi að sjá hvað kemur úr því. Svo held ég barast að ég sé kominn með magasár út af skólanum það er crazy mikið að gera. Hvað er til ráða jú hreyfa sig og borða hollt en það er bara svo leiðinlegt er ekki frekar hægt að ditta bara að manni og fá svo skoðunarmiða? koma svo bara aftur að ári í sömu skoðun.
5 ummæli:
Hvar ætti miðinn að vera smá pæling.
Já þetta er bara ekki svo vitlaus hugmynd hjá þér. En persónulega væri ég frekar til í að fá bara eitthvað kort til að hafa í veskinu, heldur en límmiða á rassinn. (Miðinn færi augljóslega á rassinn.)
Aftur á móti væri ég til í að setja einhverskonar lím á rassinn á þér, svo að þú værir ekki að þvælast til Íslands þegar ég ætlaði að koma og heimsækja þig.
Kv Heiðrún
Það er ekki að ástæðulausu að stjörnunar falla frá 27 ára.
Komin lítil stelpa hjá okkur, 3930gr. og 52cm:) öllum heilsast vel. óli, magga og grísirnir 3.
p.s hvernig verdur thad med sólbakkann í sumar verdur hann settur í útleigu?
Sólbakkanum hefur verið ráðsafað
Skrifa ummæli