föstudagur, mars 09, 2007

Ungdomshus hvað er það

Ungdomshúsið er farið það er búið að rífa það niður og ekki einn steinn eftir. Þar að leiðandi er búið að opna leiðina mína aftur og get ég hjólað beina leið í skólan. É vill þakka lögfræðingnum mínum fyrir að hafa fórnað frítíma sínum í að tala við dönsk stjórnvöld. Fyrir mína hönd einnig vil ég þakka öllum þeim sem að sýnt hafa mér stuðning þessar síðustu erfiðu vikur. Ég hef þurft að hjóla meira en ég á að þarf og vona ég að það komi ekki aftur fyrir. Vá hvað ég er sáttur við að þessu stríiðsástandi er lokið.

En allavega þeir sem að ég hef talað við hérna á bakanum um að grilla um helgina. Þá er veðurspáin ekkert sérstök en kannski skellum við bara samt á grillið? Hvað segir fólk um það.

Fór á Spicylicious í gær með Gunnhildi,Hildi,Önnu og Óskari. Og ég skal segja ykkur það að maturinn var bara góður ekkert hægt að setja út á hann. Afgreiðslan var fín en hitastigið inni á staðnum var óbærilegt hreint út sagt. En staður sem að hægt er að mæla með. Eftir það var farið á einhvern bar og drukkið og kjaftað en við hjónin fórum nú heim á skikkanlegum tíma enda skóladagur í dag og ekki má maður vera með athyglina í einhverju lágmarki.

Nú á eftir eru Gunnhildur að fara að vinna og ég og krakkarnir erum að fara á tónleika í 12tonum. Það er enginn annar en Stafrænn Hákon sem að er að spila og að þessu sinni með live band með sér. Hef aldrei séð hann live en hef heyrt ýmislegt með honum sem að gefur góðan forsmekk á það sem koma skal.

Ef að það er einhver þarna úti sem að veit um einhverja síðu aðra en tonlist.is þar sem að ég get fengið íslenska tónlist þá er hin sami beðin um að léta mig vita.

Engin ummæli: