
Krakkarnir fengu mikinn glaðning í dag því hún Linda Rós systir sendi þeim bækurnar um Snúð og Snældu ég fékk bara svona nett flasback þegar að ég sá þær og eru þau alveg yfir sig hrifin. Einnig sendi hún bækur fyrir Frirðiku til að æfa sig fyrir skólan stærðfræði og bókstafirnir.
Jæja þá er sumarið bara vonandi komið 13 stiga hiti og bara ekkert annað að gera en að pakka vetrarfötunum saman. Nei það borgar sig nú kannski ekki ef að páskahretrið kemur en þá verðum við bara í sumarbústað með skemmtilegustu íslendingum í köben. Og þar verður hlegið og borðaður góður matur. Vá hvað mig hlakkar til.
En skemmtilegar fréttir því ein vinur minn er að sækja um í skóla hér úti veit ekki hvort að ég megi segja hver en ég segi það þegar að ég hef fengið það staðfest að þetta sé ekki leyndó.
Alltaf gaman þegar að vinir manns sjá ljósið og flytja til köben. Þar að segja í nám.
Friðrika fór á línuskauta hérna áðan og stóð sig eins og hetjan sem að hún er en það er nú eittthvað í það að hún fari alveg sjálf út og þurfi ekki hjálp. Það kæmi mæer ekkert á óvart ef að hún mundi nú bara kenna sér þetta sjálf eins og að hún gerði með hjólið hér í sumar. Jakob vildi endilega fara í línuskautana en hann sætti sig við að vera bara með hlífarnar. Og rólaði eins og herramaður með þær. Allar nátturulega bleikar þið getið ýmindað ykkur hvað ég var ánægður með það.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli