Íslenska krónan er hún bara ekki búinn að vera? jú það er voða cool að þrjúhundruðþúsund manna þjóð sé með eigin gjaldmiðil. En er það ekki af sem að áður var væri ekki réttara að hætta bara að vera cool og taka upp Evruna? Ég fann svo sem ekkert fyrir þessu fyrr en ég flutti hingað út. Það er nefnilega svo magnað því að alltaf þegar að ég fæ námslánin mín þá fer ansi stór hluti bara í gengismismun. Því ég þarf jú að flytja peninginn á milli landa. Og akkúrat í þessum töluðu orðum er danska krónan þessi elska í 12,008 sem þýðir að afhverjum hundraðþúsundkrónum sem flytja þarf á milli landa þá eru ekki nema 8.303,58 dkkr eftir. Þetta þykir mér frekar fúlt en hvað get ég gert ég er íslendingur og við erum cool með okkar eiginn gjaldmiðil.
Einnig er það smá svekkelsi að við íslendingar þurfum að taka lán fyrir mentunn okkar og borga hundraðþúsundkrónur fyrir önnina í HR. Annað væri það ef að við værum Danir því þá fengjum við svokallaðann Su styrk sem að ekki þarf að endurgreiða og frítt í skóla. Reyndar fáum við cool íslendingarnir líka frí skólagjöld. En að hugsa sér lúxusinn að þurfa ekki að taka námslán sem að maður á eftir að vera að borga af alla sína ævi. Smá pæling en mér er samt alveg sama því ég er cool íslendingur.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli