föstudagur, mars 16, 2007

Sviðskrekkur

Ég er haldin gríðalegum sviðskvíða en þegar á sviðið er komið þá er eins og að það losni um eitthvað. Hópurinn minn var með kyningu í dag á sal. Og ég var svo stressaður ég las yfir efnið aftur og aftur þó svo að ég kynni það utan að og skrifaði glósur. Setningar sem að ég vildi koma að og mikilvæg mál. En vitir menn við vorum fyrstir á svið og Shaun byrjaði kynninguna og gerði hana bara vel. Ég var enn kvíðinn og hafði áhyggjur af því að ég mundi ekki muna eitt né neitt. En vitir menn þegar að komið var á mér þá byrjaði ég á brandara sem að var alveg óundirbúinn og allir hlógu. Meira að segja þá bað kennarinn minn mig að bíða aðeins meðan að hann þurkaði hláturtárinn. Og eftir það þá hélt kynninginn áftam og ég sagði frá mínum hluta og las af powerpointinu. En svo kom spurning úr sal sem að var alveg góð og ég svaraði henni bara nokkuð vel. En þá kom comment frá einum samnemanda sem að er ágætis félagi minn nema hvað að ég svaraði honum svo snyrtilega að allir sprungu úr hlátri aftur og kennarinn stoppaði mig aftur til að þurka tárinn og spurja mig hvernig mér hafi dottið í hug þetta svar. Það var bara eitt að segja" það kom bara". Þið verðið að afsaka að ég skrifi ekki brandarana en þetta er svona vinnumál sem að ég held að fæst ykkar skiljið eða bara findist fyndið. Það mætti kannski kalla þetta svona nördabyggingabransahúmor. En svo kom að því að slútta þessu nema hvað þegar að ég er að taka usb lykilinn úr tölvunni hjá kennaranum mínum þá sé ég að það er ein skrá sem að heittir xxx. Og ég nátturulega spyr hvað sé í honum og allir sprungu úr hlátri og þar á meðal RCM sem að er kennarinn minn. En hann tók 15 mínútur í að útskýra að þetta væri ekki það sem að við héldum með hláturinn rétt fyrir innan varirnar. Eftir tíma tók hann mig á tal og sagði að hann mundi vilja, ef að mér væri sama að minn hópur yrði alltaf fyrstur með allar kynningar því hann sagði "You are a icebraker wich is got just there are not alot of you" . Nú verð ég að ræða við hópinn minn um þetta að vera fyrst því það getur verið gott og svo getur það líka verið slæmt.

En sem sagt ég er með sviðsskrekk en ég var veislustjóri hjá Einari og Maríu þá var ég svo stressaður búinn að skrifa glósur og skissur sem að ég endaði svo með að nota ekki neitt. Og ég held bara að það hafi verið mjög skemmtilegt brúðkaup.

Þannig fyrir Lindu og Sigga brúðkaup þá ætti ég kannski bara að hætta að skrifa glósur því ég kem ekkert til með að nota þær. Kannski of seint að hætta þegar að maður er kominn með alltof mikið af glósum. Spurning, en eitt get ég lofað ykkur að það verður helvíti skemmtilegt brúðkaup. Bara vonandi að fólk verði afslappað.

Engin ummæli: