laugardagur, mars 17, 2007

Arkitektar og fleira

Keypti mér bók um daginn sem að heitir TOP 50 ARCHITECTURE COPENHAGEN. Og get ég mælt með henni þetta er svona vasabók með 50 flottustu byggingunum hér í köben að mati Arkitektafélagsins í köben. Mér þykir þessi bók hnitmiðuð og skemmtileg því að ekki þarf að eyða miklum tíma í að lesa um hverja byggingu. Heldur eru þetta stuttar og hnitmiðaðar greinar. Mér þykir einn arkitekt standa uppúr og það er hún Zaha Hadid sem að er ekkert smá klár kona mæli með ef að þið hafið áhuga að googla nafninu hennar. Einnig þykir mér líka margt sem að Scmidt, Hammer & Lassen hafa hannað einstaklega flottt og ekki skemmir fyrir að verkefnið sem að ég er að vinna að í skólanum kemur frá þeirra stofu.

Hann Hjölli vinur minn er hérna í köben yfir helgina og er búið að vera frábært að hitta hann nema hvað að núna er að hellast yfir mig flensuskítur og varð ég að kansela hitting okkar í gær ömurlegt. Ég hef ekki orðið veikur síðan að ég veit ekki hvenar enda verð sjaldan veikur. Afhverju þarf ég akkúrat að verða eitthvað slappur núna en vonandi verður þetta nú ekki meira en komið er.

Héðan er allt gott að frétta ekkert svo sem fréttnæmt beint lífið gengur bara sinn vanagang þó svo að maður búi í útlöndum. Reyndar rákumst við á Bjössa frænda hennar Gunnhildar og Birnu konu hans alveg fyrir tilviljun niðrá Striki í gær. Við vissum ekkei að þau væru hér í Köben þannig að þetta var skemmtileg tilviljun.


Einnig þá er ég að skrifa CV (ferilskrá) mína þessa dagana og ef að einhver er með góðar ábendingar þá eru þær vel þegnar. Því það er svolitið erfitt að selja sig Edda hans Óla er reyndar búinn að hjálpa mér mikið. En mig vantar samt einhver góð orð og hvað er svona helst sem að fram þarf að koma. Ef þú vilt jálpa sendu mér þá bara mail og ég sendi þér það sem að er komið á cvið.

Engin ummæli: