
Mér varð frekar brugðið þegar að ég var að hjóla heim úr skólanum í gær þegar að ég nam staðar á ljósunum hjá Fredricksbergcenter. Ég lít til hliðar og haldiði ekki að sjálf Madonna standi þar, ég varð svona hálf vandræðalegur því mér fannst eins og að hún væri bara að glápa á mig. Ég lít snögglega undan því ég veit að frægt fólk vill ekki að það sé glápt á það. En hey þetta er Madonna þannig að ég rétt áður en að ég hjóla af stað þá lít ég snögglega við og þarna er hún enn og glápir ekkert minna í átt til mín. Ég tek af stað og hugsa mig um vá Madonna var að stara á mig. Er ég kannski bara svona líkur honum kalli þarna í CSI eins og Gunnhildur vill meina. Kannski þekkir Madonna hann og var að velta fyrir sér hvað hann CSI gaurinn væri snobbaður og heilsaði henni ekki. Vá kannski er ég að koma af stað deilum í Hollywood ég Siggi Andri. Skrýtið jæja mér sóttist förin heim vel þrátt fyrir mikinn mótvind og þessi helvítis ljós á Jagtvej og lendi ég á öðrum slíkum. Ég gat bara ekki hætt að hugsa um þetta Madonna að glápa á mig usss ég á aldrei eftir að sjá hana aftur. Haldiði ekki að ég líti við og þarna er hún aftur Madonna holdi glædd. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera en mér var alltaf kennt að það er dónaskapur að stara þannig að ég starði bara á móti henni. En hún gaf sig bara ekki og ég leit undann. Nú ákvað ég að vera bara frekar roggin og leit á hana og blikkaði hana en hún bara starði. Þá áttaði ég mig á því að Madonna var að hanna föt fyrir H&M og nátturulega er auglýsing með henni á öllum strætóskýlum í Köben.
2 ummæli:
hæ þetta er baldvin ég hlakka til þegar ég kem næst til ykkar. þá ætla ég að leika við friðriku og jakob.
Tek fram að hann skrifaði þetta alveg sjálfur á lyklaborðið fyrir utan smá hjálp með einstaka stafsetningu frá mömmu sinni. Biðjum að heilsa öllum.
Kossar og knús
Hjallabrautargengið
Baldvin fær sóran plús íkladdan fyrir að hafa commentað og enn stærri plús fyrir að hafa gert það aleinn. Okkur hlakkar líka til að koma og sjá ykkur bræður og líka öll hin sem að muna eftir okkur
Skrifa ummæli