miðvikudagur, mars 07, 2007

Lee,Levis,Q,Wrangler kannski bara Puma

Er að verða brjálaður, fór í dag eftir skóla og gerði heiðarlega tilraun til að versla mér buxur. En allt kom fyrir ekki ég bara fann ekki neinar og það er ekki eins og ég hafi farið í fáar búðir nei nei fór í allar helstu gallabuxubúðir á strikinu. Fór meira að segja í GALLABUXNABÚÐINA sem að Vigdís sýndi okkur hérna um árið. Veit ekki hvað ég á að gera, þetta var alltaf svo auðvelt þegar að maður var að smíða. Þá var það bara að fara í smíðabuxurnar og einhvern bol og þá var maður reddí. Kannski að maður fari bara aftur að smíða þá get ég hætt að hugsa um þessar gallabuxur og keypt mér bara smíðabuxur. En ég sá fullt af íþróttabuxum sem að mig langaði í þá er það bara spurning um að taka íþróttagaurinn á þetta en æji nei mig vantar nýjar gallabuxur. Og það helst fyrir laugardaginn því þá er Rass (Rasmus) búinn að bjóða mér í party. Skrýtið verð einn þarna sem að er ekki fæddur og uppalin dani og meira að segja verð ég eini úr skólanum. Þannig að ef að það eru einhverjir félagsfæðinemar sem að vantar verkefni þá er þetta kvöld tilvalið. Siggi og danirnir . Skal vi snakke sammen.

Er hægt að sleppa Hróaskeldu í ár þegar að Beasty boys eru búnir að boða komu sína.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kvitt kvitt!!
og
Þú færð póst frá mér í fyrramálið með öllum helstu upplýsingum

Nafnlaus sagði...

takk fyrir mailid, hamphúsin eru ekkert smá spennó. bid ad heilsa fjölskyldunni.