
Hún Friðrika mín er spennufíkill svo mikið er víst. Þegar að við höfum farið með hana í tivolið þá verðum við að stoppa hana af. Og ef ekki við þá gera verðirnir það. Hún treystir sér í öll tækin. Því hraðar því skemmtilegra. þegar að ég sá þessa mynd hér að ofan þá datt mér bara ein stelpa í hug og það er hún Friðrika.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli