
Nokkrar gamlar en góðarLoksins er byrjað að rífa Ungdomshúsið sem að allir eru ekki á eitt sáttir við og margar hliðar é málinu. Og jáhá ég hef skoðun á þessu mér finnst þetta ekki vera köben sæmandi að vera að rífa þetta hús niður og er ég bara alveg brjálaður. Því með tilkomu stórvirkra vinnuvéla þá þarf ég að hjóla enn stærri hring í kringum húsið en ég hef þurftað gera undarfarnar vikur. Mér þítti nóg að taka litla hringinn í kringum það en nú þarf ég að taka RISASTÓRAN hring í kringum það. Þessi hringur er það stór að þegar að ég kem í skólann þá er ég bara búinn á sál og líkama. Ég er ekkert búinn að gera í málinu en lögfræðingurinn minn segist vera að kanna hver grundvöllur sé fyrir skaðabótamáli. Nei nei þetta er ekkert mál bara meira af köben sem að ég er að sjá í fyrsta skipti.
Nú er ég heima hjá Kidda bróðir að bíða eftir að hún Hildur systir komi vegna þess að ég er með lyklana og þarf að hleypa henni inn. Alltaf gaman að fá Hildi í heimsókn þó svo að ég viti ekki hvað ég á eftir að hafa mikinn tíma til að vera með henni. Því það er verið að deila verkefnum alveg hægri vinstri. Þetta er orðið vo slæmt að 24 tímarnir duga vart. En þetta er það góða við að vera í skóla aldrei dauður tími. Reyndar ætti maður ekkert að vera að kvarta því þeir sem að slysast til að fara í dýralækninn. Þeir þurfa að kaupa sendiferðabíll undir bækurnar sínar. Þetta er ekkert grín ég held að Vigdís og Embla fara þrjár ferðir á morgnana í skólan til að geta verið með allar bækurnar með sér. Það er brjálæði!!
Annars er allt gott að frétt af okkur hér í DK veit ekki hvað er að frétt af ykkur því að það kunna svo fáir að skrifa comment. Vonandi er bara allt gott að frétta af ykkur ég meina þið búið nú einu sinni á Íslandi hvað getur það annað en verið gott.
6 ummæli:
Og stundum jafnvel fjórar!! ;)
Allt fínt af mér sko. Langaði bara að kasta á ykkur kveðju, það væri gaman ef þið gætuð svo kastað einhverjum hluta af henni áfram til Hildar "systir".
sæll.. allt gott að frétta af okkur sko, bara að láta vita!!
á ég ekki að senda ykkur myndir síðan við vorum hjá ykkur? svo margar sætar af krökkunum :)
kv, N
Jú endilega Nanna sendu okkur myndirnar elskan
Fyrirmyndarfjölskylda : )
Þetta er nú meira ástandið með hjólahringinn ég sendi lögfræðinginn þinn út eftir viku...
Nákvæmlega hlakka til
Skrifa ummæli