föstudagur, mars 02, 2007

Brjál



Er viss um að ég hef aldrei verið jafn hræddur á ævinni og ég var í gær en þá lenti ég í miðjunni á mótmælum ungsfólks hér í köben. Þetta var fólk að mótmæla að það væri verið að taka af þeim Ungsomshúsið. Og þvílíkt og annað eins ég tafðist um þrjá klukkutíma á leiðinni heim. Það var varið að sprengja russlatunnur velta bílum og henda málingarsprengjum. Og allt að verða brjálað og var það reyndar í alla nótt en ég er feginn að hafa komist lífs af úr þessum hremmingum.

En annars var skólaferðalag í gær sem að var ekert smá áhugavert við fórum að skoða hippaþorp. Já ég trúði heldur ekki að þetta væri til en það er ennþá til fólk sem hugsar bókstaflega um umhverfið og kannski einum of mikið. Það var t.d ungur maður að sýna okkur teikningar af húsi sem að hann ætlar að byggja og það úr hampi. En hampurinn fer í gegnum smá ferli áður en að hann er nothæfur. Og einn sem að var að byggja hringhús sem að var kannski ekert mergilegt nema hvað að það voru tvö risastór Eikartré í stofunni hjá honum sem að héldu uppi milliloftinu. Alt er nú til en tilgangurinn með þessari ferð var sá að fá okkur til að hugsa umhverfisvænt því við erum að hanna hús sem að eiga að vera eins umhverfisvæn og hægt er. En það er spurning hvar eigi að stoppa. En ég held að við munum nota hamp til að einangra þakið hjá okkur því varmagildið er á við steinull.

Annars er nú kannski ekkert mikið að frétta jú Baldvinn var hjá okkur í tvær nætur og kemur svo aftur á morgunn og ég veit ekki hvað hann ætlar að vera lengi en vonandi í alveg í tvo daga. Greyjið Baldvin tók bara með sér fötinn sem að hann kom í og náttf-t því það var ekki pláss í töskunni hans fyrir súrum gúrkum frá Ora. Sem ætlaðar voru fyrir Gunnhildi. En krökkunum finnst rosalega gamann að hitta hann eins og okkur Friðrika er byrjuð að telja niður dagana þangað til að við komum til Íslands.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

er ekki nóg framboðið af pickles fyrir eiginkonuna í Danaveldi??

Nafnlaus sagði...

hæhæ siggi, langar rosalega ad vita hvada thorp thetta var, var thetta thy lejeren. er nefnilega eimitt ad fara ad teikna svona økovenligt hus:) endilega sendu mér á maili eda svaradu hér eda einhvad thad væri frábært. kvedja til konunar og afhverju er hún svona sólgin í súrar?

SGFJ sagði...

Magga gefðu mér mailið hjá þér.

SGFJ sagði...

Magga gefðu mér mailið hjá þér.

Nafnlaus sagði...

Hvenar eruð þið að fara til Íslands?

SGFJ sagði...

Förum heim í sumar einhvertímann

Nafnlaus sagði...

Hæ kæra fjölskylda....fengum endursent jólakort fyrir helgi sem var ætlað ykkur, en hefur ekki ratað til ykkar? þið vitið a.m.k að við gleumdum ykkur ekki:-)
Biðjum að heilsa, sjáumst vonandi í sumar, vonum að þið verðið á landinu 28. Júli:-)

kv.Ástrós og c.o.

Nafnlaus sagði...

2004156@stud.aarch.dk