Þá er snjóstormurinn sem að er búiða að vera að tala um í viku loksins kominn. Mér finnst þetta nú reyndar vera niðurlæging fyrir orðið snjóstormur að kalla þetta veður snjóstorm. Þetta er nú ekkert meira en smá fjúk. Samgöngur liggja niðri strætó keyrir ekki og lestirinar eru seinar. Fólki er ráðlagt að vera heima og stéttafélögin eru með yfirlýsingar um að félagar þeirra þurfa ekki að mæta til vinnu. Og að það sé ekki hægt að draga af þeim laun ef að þeir mæti ekki. 'eg man að þegar að það dundi svona fjúk yfir þá gallaði maður sig bara upp mætti í skólan og fór svo eftir skóla að stökkva fram af húsökum í skaflana. Þetta þótti nú ekkert tiltökumál ég meira að segja hjólaði í morgun í skólan. Það var ekkert auðvelt en þetta hafðist nú allt saman. Nú sit ég hér í skólanum að bíða eftir að stærðfræði tíminn byrji. Stærðfræðin í vetur verður ERFIÐ ég hélt að þetta hefði verið erfit í fyrra en nú er ætlast til að maður læri bara einhverja geðveiki ég er strax kominn með kvíðikast. En kannski bara að maður fái Villa snilling hingað út til að kenna manni. Hann hefði nú gott af því að koma í danskaloftið og drekka danskt gos. Annars er bara eintóm gleði á mínu heimili vegna snjósins Jakob leit út um gluggan og tilkynti okkur að það hefði snjóað meir. Og gerði hann það meira að segja á íslensku. Friðriku þótti ekki mikið til þess komið heldur hafði hún meiri áhyggjur hvort að ég væri búinn að gera við sjónvarpið. Því Martin og Ketil voru í morgunn sem að eru uppáhalds þættirnir hennar. Hún er að verða rosalega dönsk í gær þegar að ég var að setja einhvern dvd disk í og setti á ensku þá urðu altí einu mikil lætu og átti ég að láta myndina byrja uppá nýtt og setja danskt tal á. Þetta er svo fyndið þegar að hún æpir eitthvað eða biður um eitthvað þá endurtekur Jakob það einnig ef að Friðrika borðar ekki eitthvað eða finnst það bara vont. Þá er Jakob bara alveg sammála finnst þetta bara vont. Annars er svo æðislegt að þau eru svona góðir vinir geta leikið sér saman og bara gert allt saman. Veit ekki hvernig þetta verður í nánustu framtíð en er á meðan er. Þessa dagana erum við í stökustu vndræðum með að skipuleggja sumarið hvað eigi að gera ig hvar eigi að vera. Friðriku langar að vera á íslandi í allt sumar því hún saknar allara svo mikið. En við verðum að ræða þetta hjónin kannski að ég komi heim til að vinna en kannski fer ég bara að vinna hérna úti enda vill ég helst ekki fórna sumrinu hérna fyri íslenskt sumar. Þó svo að það væri gaman að vera heima í einhvern tíma til að hitt alla. En það verður tekinn ákvörðun ´´a næstunni.
Jæja best að fara að láta steikja í sér heilan með einhverri stærðfræði sem ég hef aldrei séð áður.
fimmtudagur, febrúar 22, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli