mánudagur, febrúar 19, 2007
Hitt og þetta
Hvað skal segja eftir hina fínustu helgi er vikan tekinn við. Hæst frá helgini ber þó að það ver haldin Festelavne hér á Sólbakkanum. Sem að er Öskudagur Jakob var turtles og ekkert amá flott skjaædbaka þar á ferð. Friðrika var prinsessa með eplakinnar,maskara,kórónu og í háhæluðum skóm. Veislan byrjaði Klukkan 14 með því að litlu krakkarnir 0-3 ára slóu köttinn úr tunnuni Jakob átti góða spretti og að ég held hafi bara verið bestur í sínum flokki. (Þ.a.s örvhentur)
Friðrika gerði sér lítið fyrir og sló köttin úr tunnuni og var kjörinn drottning og leyst út með gjöf og sælgæti sem að geymt verður þangað tiæ á laugardaginn. Eftir að kötturinn fékk frelsið þá var það kökusamkeppnin sem að við hjónin gátum ekki tekið þátt í sökum tæknilegraörðuleika. Heiðrún Bree Runólfskona vann annað árið í röð með þessarri líka bombu. Þetta var marenskaka með jarðaberjum og alskonar ávöxtum ofan á. Hrein himnasæla og var hún leyst út með gjöf. Jakob og Friðrika voru svo bara rokinn strax eftir kökuátið og smá söng út að leika. Friðrika hékk með three amigos en jakob eignaðist nýja vinkonu. Sem að hann var alls ekki tilbúinn að skipta út fyrir að koma heim en það var hún Þórdís. Hún var meira að passa hann því hún er jú að ég held ellefu ára.
Svo að við tökum þetta bara í þeirri röð sem að mér dettur í hug að skrifa þetta þá fórum við karlmennin með börnin okkar í zooið á laugardaginn. Það var margt um mannin svo þegar að við vorum búnir að sjá þau dýr sem að skipta máli þá fær Runólfur mors um að okkur sé boðið í kaffi á 11 sal. Vegna afmælis Sveins þrítuga sem að var að verða jú þrítugur. Við og jói og co gáfum honum listaverk sem að við kusum að skýra þú ert ekki gamall gamli. Það var rammi með strætómiða í miðjuni sem að gildir fyrir aldraða og öryrkja. Hann var að vonum ánægður með gjöfina enda ekki erfitt að gleðja hann Svenna. En eftir að afmælisbarnið fór að sinna gestum frá íslandi þá sátum við þó nokkur eftir og öll að vesenast með hvað ætti að elda þegar að heim væri komið. En þá upp úr þurru var bara ákveðið að panta pizzu upp á 11 sal. Enda var þarna á ferð úrvalsliðið af Sólbakkanum þó að nokkra góða hefði vantað.
En nú er það bara harkan tekinn við skólinn hjá mér orðinn alvöru, búið að útdeila verkefninu í hard copy. Og hóparnir að byrja að myndast.
Gunnhildu að vinna á kaffihúsinu, skoða skóla á fullu og halda heimilinu í rétu horfi með smá hjálp frá mér .
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Úff maður svitnar bara við tilhugsunina að eiga eftir að gera svona "photoshop" mistök líkt og á myndinni ;)
Þetta er ekki photoshopað helduru það?
Skrifa ummæli