
Og aulaprik vikunar fær Siggi Andri. Jú þannig standa málin að það var Valentinusar dagurinn var þann 14. Þetta er dagur sem að ég fyrirlít meira en Unglinga bólur. Afhverju að vera að taka upp siði frá USA. Eigum við ekki nægilega mikið af dögum og yfir höfuð að eiga einhverja sér daga til að gleðja konuna sína. Allavega þá ákvað ég að vera í fyrri kantinum og keypti blóm handa Gunnhildi á mánudaginn bara svona til að gleðja hana. En þegar að miðvikudagurinn 14 rann upp þá var það bara eins og hver annar dagur ég fór í skólann. Fríblöðunum rigndi yfir mig á leið minni í skólan ég var að hlusta á ipodinn ekkert var öðruvísi. Ég meira að segja leyfði mér að hugsa að danir væru nú kannski bara ekki eins gin keyptir fyrir amerískum bull dögum. En það var nú heldur betur annað uppá teningnum þegar að ég hjólaði eftir skóla í gegnum miðbæ köben. Það voru allir blómasalar með helíumblöðrur sem að á stóð I love you, Shit hugsa ég danir eru bara eins og íslendingar ég sá það vænlegast að flýja veruleikan en hver var griðastaður antí valentíusar menn. Ég er fljótur að hugsa eins og vanalega og ákveð að stökkva inní 12 tóna. Sem ég kem þar inn þá finnst mér ætlunarverk mitt hafa tekist ég geng þiður í íslenskutónlistadeildina og flétti þar í dágóðastunt. Og stansa við Lay Low diskinn vegna gríðalegra umfjöllunar sem að ég hef orðið var við í kringum þann disk. 'eg labba upp og bíð góðan daginn því yfirleit er starfsmaður 12 tona íslenskur en afgriðslu stúlkan horfir bara á mig. Ég er fljótur að hugsa og fatta strax að hún er ekki íslensk þannig ég spreyti mig á minni gríðalega góðu dönsku. Mér tókst meira að segja brandara á dönsku. Sem að hún hló að fannst ég þurfa að taka það fram svo ekki yrði neinn miskilningur. Afgreiðslustúlkan býður mér að hlusta á diskinn sem að ég afþakka enda var þessi diskur ætlaður Gunnhildi. Og ég er búinn að hlusta á hann á tonlist.is þökk sé Lindu Rós yndi. Ég held för minni áfram en fatta að við eigum engar græjur þannig ég stekk inní Fona á Vesterbrogade og kaupi þessa fínu hátalara við tölvuna fyrir Gunnhildi. Og Skunda á stað stoltur með frammistöðuna. Þegar heim er komið er Gunnhildur í óða önn við að þrífa höllina. Ég færi henni gjafirnar og hún segir orðrétt "vá flott að fá disk og vá vá vá einmitt hátalanir sem að mig langaði í". En svo fer Sigginn að tengja hátalarana en ekki virkuðu þeirr ég verð svona nett pirraður en hugsa ég finn bara kvittunina og fer að skila þeim. Hvað haldið þið ekki að ég hafði týnt kvittunnini á leiðinni heim. En ákveð samt að fara að reyna að skila hátölurunum. En stúlkan tjáir mér að hún megi ekki taka við þeim nema gegn framvísun á kvittunn. Ég spyr hana hvort að hún sé að djóka því að hún muni nú eftir mér því það voru ekki liðnar 60 mín síðan að ég keypti þá af henni. Hún segist ekki vera að djóka ég rý út í þvílíka skapinu. Rýk heim alveg brjál og segi Gunnhildi hvað hafi gerst. Gunnhildur var ekki alveg að kaupa þetta og alls ekki sátt. Þannig að hún finnur númerið hjá Fona og fær loks að tala við einhver top hjá F group sem að á Fona. Og hann sendir okkur afrit af kvittuninni á maili. Og við gátum skipt hátölurunum sem betur fer. Þetta kennir manni að halda uppá allar kvittanir og einnig það að Gunnhildur er hörkukvendi sem að borgar sig ekki að beita neinu misrétti ogheldur ekki mér því þá sendi ég Gunnhildi bara í málið
2 ummæli:
Sko mína Gunnhildi :)
eðal kvensa þar á ferð og reddar kallinum í hallærinu :)
þú þarft að kenna mági þínum sitthvað Siggi minn... segi ekki meir... valentínusardagur, konudagur.. hvað er nú það???? snökt snökt...
kv, Nanna
Skrifa ummæli